Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Síða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Síða 54
Góður biti 7. desember 2018KYNNINGARBLAÐ ÍSLENSKUR HEIMILISMATUR EFTIR VIGT: Girnilegir réttir á hagstæðu verði Halldór Þórhallsson matreiðslumaður hefur um árabil verið eitt af kennileitum Mjóddarinnar í Breiðholti þar sem hann hefur síðan 1996 rekið hina vinsælu matsölu Hjá Dóra. „Hjá okkur ríkir notalegt andrúmsloft með allt að því heimilislegum blæ. Matsalan nýtur mikilla og stöðugra vinsælda enda vinn ég eingöngu með gott hráefni og legg áherslu á bragðgóðan mat fyrir hagstætt verð, en selt er eftir vigt og meðalverð á máltíð er um 1.400,“ segir Dóri, en fyrir þá upphæð er hægt að fá myndarlegan skammt af frábærum íslenskum heimilismat. Allir réttir eldaðir á staðnum „Þótt hér í hádeginu verði oft myndarleg röð svangra viðskiptavina þá gengur þjónustan hratt og vel fyrir sig. Því hikar fólk ekki við að bíða smá stund þar sem það veit sem er; að maturinn er gómsætur og það bregst aldrei. Ég er líka með einvala starfslið sem hefur verið lengi hjá mér,“ upplýsir Dóri glaður í bragði. Veitingamaðurinn bendir á að viðskiptavinirnir geti ávallt gengið að sex réttum vísum. „Hér er á hverjum degi djúpsteikt ýsa, kjúklingur, kjötbollur, steikt lambalæri, svínahryggur með puru og rifjasteik með puru. Við erum líka alltaf með tvo aðra rétti, sem eru mismunandi eftir dögum, t.d. lasanja, svínasnitsel og fiskibollur. Á föstudögum er ég oftast með hamborgarhrygg og snitsel með tilheyrandi,“ segir hann. Fastur punktur í tilverunni „Viðskiptavinir mínir líta á það sem kost að hér breytist fátt í gegnum árin. Þeir vilja hafa þetta óbreytt og geta gengið að gamla góða íslenska heimilismatnum vísum. Það eru þúsund veitingastaðir í Reykjavík og fjölbreytnin gífurleg en í þessari flóru er Hjá Dóra fastur punktur í tilverunni hjá mörgum,“ segir Dóri. „Í salnum eru sæti fyrir 35 manns og er margsetið við þau í hádeginu. Vinnuhópar og iðnaðarmenn borða hér í stórum stíl og einnig fólk úr fyrirtækjunum í kring auk þess sem ýmsir sem eiga erindi í Mjóddina koma við hjá okkur og fá sér gjarnan í svanginn. Þetta breytist aðeins þegar líður á daginn en á þeim tíma kemur fólk oft við og kaupir mat til þess að hafa með sér heim. Það er einmitt mikið um það á föstudögum þegar fólk er lúið eftir vinnuvikuna – þá finnst því gott að koma við hjá mér og kaupa tilbúinn, bragðgóðan rétt til að taka með sér heim, henda síðan bakkanum og byrja helgina.“ Dóri segir að algengt sé að eldri borgarar kaupi mat hjá honum og einnig þeir sem búa einir. „Fólk sér hagkvæmnina og tilbreytinguna í því að kaupa heitan, tilbúinn mat. Auk þess sem það sparar mörgum bæði fyrirhöfn og tíma,“ segir veitingamaðurinn vinsæli. Hjá Dóra Þönglabakki 1 – Mjóddinni. Opið er virka daga 11.30–13.30 og svo seinnipartinn frá 17.00–19.00. Lokað er um helgar. n
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.