Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Qupperneq 54
Góður biti 7. desember 2018KYNNINGARBLAÐ
ÍSLENSKUR HEIMILISMATUR EFTIR VIGT:
Girnilegir réttir á hagstæðu verði
Halldór Þórhallsson matreiðslumaður hefur um árabil verið eitt af kennileitum
Mjóddarinnar í Breiðholti þar sem
hann hefur síðan 1996 rekið hina
vinsælu matsölu Hjá Dóra.
„Hjá okkur ríkir notalegt
andrúmsloft með allt að því
heimilislegum blæ. Matsalan nýtur
mikilla og stöðugra vinsælda enda
vinn ég eingöngu með gott hráefni
og legg áherslu á bragðgóðan
mat fyrir hagstætt verð, en
selt er eftir vigt og meðalverð á
máltíð er um 1.400,“ segir Dóri, en
fyrir þá upphæð er hægt að fá
myndarlegan skammt af frábærum
íslenskum heimilismat.
Allir réttir eldaðir á staðnum
„Þótt hér í hádeginu verði
oft myndarleg röð svangra
viðskiptavina þá gengur þjónustan
hratt og vel fyrir sig. Því hikar fólk
ekki við að bíða smá stund þar sem
það veit sem er; að maturinn er
gómsætur og það bregst aldrei. Ég
er líka með einvala starfslið sem
hefur verið lengi hjá mér,“ upplýsir
Dóri glaður í bragði.
Veitingamaðurinn bendir á að
viðskiptavinirnir geti ávallt gengið að
sex réttum vísum. „Hér er á hverjum
degi djúpsteikt ýsa, kjúklingur,
kjötbollur, steikt lambalæri,
svínahryggur með puru og rifjasteik
með puru. Við erum líka alltaf með
tvo aðra rétti, sem eru mismunandi
eftir dögum, t.d. lasanja, svínasnitsel
og fiskibollur. Á föstudögum er ég
oftast með hamborgarhrygg og
snitsel með tilheyrandi,“ segir hann.
Fastur punktur í tilverunni
„Viðskiptavinir mínir líta á það sem
kost að hér breytist fátt í gegnum
árin. Þeir vilja hafa þetta óbreytt
og geta gengið að gamla góða
íslenska heimilismatnum vísum.
Það eru þúsund veitingastaðir í
Reykjavík og fjölbreytnin gífurleg
en í þessari flóru er Hjá Dóra fastur
punktur í tilverunni hjá mörgum,“
segir Dóri.
„Í salnum eru sæti fyrir 35
manns og er margsetið við
þau í hádeginu. Vinnuhópar og
iðnaðarmenn borða hér í stórum
stíl og einnig fólk úr fyrirtækjunum
í kring auk þess sem ýmsir sem
eiga erindi í Mjóddina koma við hjá
okkur og fá sér gjarnan í svanginn.
Þetta breytist aðeins þegar líður á
daginn en á þeim tíma kemur fólk
oft við og kaupir mat til þess að
hafa með sér heim. Það er einmitt
mikið um það á föstudögum þegar
fólk er lúið eftir vinnuvikuna – þá
finnst því gott að koma við hjá mér
og kaupa tilbúinn, bragðgóðan rétt
til að taka með sér heim, henda
síðan bakkanum og byrja helgina.“
Dóri segir að algengt sé að eldri
borgarar kaupi mat hjá honum og
einnig þeir sem búa einir.
„Fólk sér hagkvæmnina og
tilbreytinguna í því að kaupa
heitan, tilbúinn mat. Auk þess sem
það sparar mörgum bæði fyrirhöfn
og tíma,“ segir veitingamaðurinn
vinsæli.
Hjá Dóra
Þönglabakki 1 – Mjóddinni. Opið
er virka daga 11.30–13.30 og svo
seinnipartinn frá 17.00–19.00.
Lokað er um helgar. n