Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Blaðsíða 60
60 FÓLK 7. desember 2018
Varahlutaverslun
og þjónusta
TANGARHÖFÐA 4
110 REYKJAVÍK
SÍMI 515 7200
www.osal.is
osal@osal.is
FAX 515 720
ÓSAL VARAHLUTAVERSLUN
Á rásinni Barnaefni á íslensku eru lesnar upphátt ýmiss konar barnabækur með skemmti-
legum og faglegum hætti. Þess ber að geta að rásin hefur legið í dvala undanfarið ár, en
þarna má engu að síður finna fínt safn af fjölbreyttum sögum handa yngri hópum. Yfir 900
manns eru skráðir sem áskrifendur þessarar rásar sem á erindi til margra.
Lesið
fyrir börnin
Eins og segir í lýsingu rásar Guðjóns Daníels er hann bara ósköp venjulegur drengur frá Íslandi sem býr í
snjóhúsi. Ef litið er framhjá því að seinni hluti setningarinnar er augljóslega tóm tjara, þá lýsir þetta húmor
og persónuleika Guðjóns mætavel. Að rás hans eru í kringum 350 þúsund áskrifendur, sem flykkjast að til
þess að skoða hvað sé að frétta af FIFA- og almennum fótboltaáhuga Guðjóns og fá sögur úr daglega lífinu.
Þess má geta að Guðjón er þekktur fyrir að vera vinur bresku alnetsstjörnunnar JJ Olatunji, betur þekktri
sem KSI.
Á YouTube-rás Ásgeirs Hvítaskálds er ýmislegt að finna sem veitir góða mynd af
áhugasviði mannsins, sem samanstendur af sviðslistum og kvikmyndagerð. Fyrir
alla sem ekki vita var Ásgeir á bak við „költ-myndina“ Glæpur og samviska. Ásgeir
lærði kvikmyndagerð í Danmörku og hefur gert fleiri en 10 heimilda- og stuttmynd-
ir sem hlotið hafa viðurkenningu víða. Stikluna og ýmiss konar gotterí má finna á
rásinni en henni veitir ekki af fleiri áskrifendum.
Ekki skal vanmeta heim hvíslaranna. Á YouTube er fleiri en einn íslenskan hvíslara að finna
og má nefna Elisabeth ASMR, sem hóf göngu sína fyrir fjórum árum og hefur slegið í gegn
með róandi rödd sinni og nærveru. Í myndböndum hennar talar hún á ensku um hvers-
dagslífið og tilveruna og hefur fengið góð viðbrögð við íslenska hreimnum sem einkennir
afslappaðan talanda hennar. Elisabeth ASMR er með yfir 20 þúsund áskrifendur og tæpar
þrjár milljónir í samanlögðum áhorfstölum þegar þetta er ritað.
Stundum er gott að vera bara maður sjálfur, ekki síst ef til stendur að
deila sjálfum sér með almenningi. Útvarpsmaðurinn Konni Gotta
hjá Áttunni gleymir ekki góða skapinu á YouTube-rás sinni, en þar
hefur hann verið að trekkja að með persónuleika sínum. Á aðgangin-
um eru hin ýmsu vídeóblogg og annað sprell sem fylgjendur hans
sækja í.
Birgir Páll Bjarnason er einn stærsti Íslendingurinn á YouTube fyrr og síðar. Í
október árið 2011 ákvað hann að gera myndband úr tölvuleiknum Battlefield og
skömmu síðar hafði Birgir Páll atvinnu af því að útbúa myndbönd úr tölvuleikjum
víða. Heildartala áhorfs á öllum myndböndum Birgis nær tæpum 93 milljónum og
er áskrifendafjöldinn í kringum 500 þúsund.
Einn sá allra
stærsti
Konni
í filing
Fjör og
fót-
bolti
Hvíta-
skáld
í nærmynd
Hversdagslífið
í hvísli