Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Page 64
64 7. desember 2018
Tímavélin
Á
rið 1995 komst Snorri Ósk
arsson og söfnuður hans
Betel í Vestmannaeyjum
rækilega á kortið. Var það
vegna þess að ungmenni safnaðar
ins höfðu komið saman og kastað
geisladiskum sínum og bókum á
bálköst. Vakti þetta ugg hjá mörg
um og myndaði hugrenninga
tengsl við bókabrennur nasista. Í
samtali við DV segir Snorri nú að
þessi atburður hafi verið slitinn úr
samhengi og þetta hafi í raun verið
einkastund ungmennanna frekar
en einhver skilaboð út á við.
Tónlist með djöfullegan
boðskap
Söfnuðurinn í Eyjum var ekki stór,
aðeins um hundrað sálir. Í stafni
stóð Snorri Óskarsson kennari
sem stóð fyrir ýmislegu starfi í
bænum. Ári fyrir brennuna stóð
Betel til að mynda fyrir útsölu
markaði sem komst í fréttirn
ar vegna þess að þar var Bleikt og
blátt selt um tíma. Þegar Snorri
komst að því var tímaritinu snar
lega kippt úr sölu.
Um þetta leyti var söfnuðurinn
að stækka hratt og fjöldi ungs fólks
gekk Snorra á hönd. Mest var þetta
fólk á aldrinum
átján ára til tvítugs.
Árið 1995 var greint frá
því í flestum dagblöð
um landsins að ung
mennin hefðu brennt
geisladiskana sína, þá
sem hefðu „djöfullegan
boðskap“ og „ókristilega texta.“
Einnig bækur sem samrýmdust
ekki hugsjón safnaðarins. Sum
ungmennin höfðu áður brennt
nokkra diska og bækur í einrúmi
eða litlum hópum. Ein brennan
var mjög stór og þar voru brenndir
á sjötta hundrað geisladiskar, um
milljónar króna virði. Snorri seg
ir við DV að þetta hafi verið í eina
skiptið sem svona stór brenna var
haldin.
„Þetta er samt mjög algengt hjá
fólki sem tekur til hjá sér. Þarna
voru unglingar sem voru að taka
til í sínu lífi. Þeir tóku
sig saman og ég sjálfur kom lítið
að þessu.“
Af hverju brenna frekar en að
henda í ruslið?
„Það var hvort tveggja gert.“
Átti brennan að sýna einhvers
konar hreinsun?
„Nei, frekar tiltekt. Þau gerðu
þetta saman af því að þau vildu
annan lífsmáta en þetta efni bauð
upp á. Þau ætluðu að tileinka sér
kristilegan lífsmáta. Þess vegna
fóru þessir diskar, eins og KISS og
allt þetta. Það var kjarninn í þessu.
Þetta voru mestmegnis plötur
með vinsælum hljómsveitum.“
Höfðu þessir krakkar verið í
drykkju eða neyslu?
„Þau voru mörg hver búin að
vera í drykkju, en ég er ekki viss
um með neyslu eiturlyfja. Það var
sjaldgæfara á þessum tíma.“
Iron Maiden, Madonna og
Darwin
Stór hluti geisladiskanna sem
enduðu á bálinu innihélt
þungarokk, sem Snorri kallaði
djöflarokk. Auk KISS enduðu til
að mynda plötur bresku sveitar
innar Iron Maiden á kestinum.
Einnig var poppplötum fleygt á
bálið, til dæmis með söngkonunni
Madonnu. Sagði Snorri það vegna
siðleysis og kynvillu. Af bókum
sem enduðu á bálinu má nefna
Mein Kampf eftir Adolf Hitler.
Einnig rit sem innihéldu klám
fengnar tilvísanir og bækur vís
indamannsins Charles Darwin.
Hvernig var metið hvaða plötur
og bækur áttu að fara á bálið?
„Þau mátu þetta sjálf. Það
var enginn sem mat þetta. Við
hugsuðum málið út frá því hvað
Biblían segði, hvað þau vildu og
hvað hentaði ekki þeim lífsmáta
sem þau væru að ganga inn í. Það
var enginn sem latti þau eða hvatti
varðandi þetta.“
Snorri segir að brennan hafi
vakið sterk viðbrögð í þjóðfé
laginu og fjölmiðlar hafi leikið þar
stórt hlutverk.
„Þegar blaðamenn komast í
mál eins og þessi þá blása þeir
þau upp. Við sjáum þetta til dæm
is núna með þingmennina og
Klausturspjallið. Þú veist hvað
gerist þegar menn fara á barinn
og spjalla, þá veltur eitt og ann
að upp. Nú var þetta grafalvar
legt af því að þetta voru þekktir
menn og alþingismenn. Svo þegar
þetta kemur fyrir alþjóð fórna all
ir höndum. En er nokkur betri en
þeir?“
Fordæming þjóðfélagsins
Brennan var víða fordæmd í fjöl
miðlum. Í leiðara Alþýðublaðsins,
sem greindi fyrst frá brennunni,
stóð: „Trúarofstæki er bæði ógeð
fellt og hættulegt. Þeir menn sem
telja sig erindreka almættisins,
prókúruhafa guðs og sérfræðinga
í sannleikanum hafa leitt ómældar
hörmungar yfir mannkynið. Slíkir
menn sá frækornum fyrirlitningar
í frjóa jörð fáfræðinnar. Uppskeran
er þröngsýni og dómharka.“
Betel var á allra vörum og boð
að var til málþings í Háskóla Ís
lands. Þar tókst Snorri á við guð
fræðinemann Davíð Þór Jónsson,
nú prest í Laugarneskirkju, um
brennuna, kristin gildi og öfgar.
Voruð þið þá ekki að reyna að
senda skilaboð með brennunni?
„Þetta var fyrst og fremst prívat.
Þau voru að gera þetta fyrir sig
sjálf. Eðlilega rennur hugur fólks til
nasistanna þegar það heyrir orðið
bókabrenna. En ég er nú búinn að
vera kennari í yfir fjörutíu ár og á
hverju einasta vori tóku krakkarn
ir kennslubækurnar og brenndu
þær,“ segir Snorri og hlær. „Og það
var enginn sem kippti sér upp við
það.“
Ertu enn á þeirri skoðun að
þetta sé góð aðferð, að brenna list?
„Já, ég er það. Ég fer með ýmis
legt í sorpið og það er brennt veit
ég. Það er ósköp eðlilegt. En þetta
eru ekki þannig aðferðir að við
séum að framkvæma einhvers
konar djöflabrennu. Margir taka
gamlar bækur og óæskileg rit og
fleygja þeim.“ n
Gamla
auglýsingin
Norðurland 6. desember 1902
Umboðsaðilar: Húsgagnaval - Höfn / Bara snilld ehf. - Egilsstöðum
Opið virka daga kl. 10:00 - 18:00
Laugardaga 12:00 - 16:00
Ungliðar í Betel brenndu
geisladiska og bækur
n Hörð viðbrögð þjóðfélagsins n Á sjötta hundrað titlar
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Tekist á í háskól-
anum Tíminn 18.
nóvember 1995.
Andleg til-
tekt Á sjötta
hundrað
geisladiskar
brenndir.