Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Side 74

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Side 74
74 FÓLK 7. desember 2018 Hólshraun 3, 220 Hafnarfjörður / S 555 18 10 og 565 1810 / veislulist@veislulist.is / veislulist.is Afgreitt á einnota fötum, tilbúið fyrir veisluna HRINGDU OG PANTAÐU Í SÍMA 555 1810 Jólahlaðborð 2018 V e i s l u r e r u o k k a r l i s t ! PINNAMATUR Siðmenntar n Sjá um nafngiftir, fermingar, giftingar og útfarir n Eurovision-stjörnur og þingmenn A thafnarstjórar eru þau kölluð sem stýra athöfnum lífsskoðunarfélagsins Sið- menntar, félags siðrænna húmanista. Sjá þau um nafngift- ir, fermingar, giftingar og útfarir líkt og prestar og klerkar í öðrum trúfélögum. Athygli vekur hversu margir af athafnarstjórunum eru nafntogaðir einstaklingar. Frægt fólk úr hinum ýmsu geirum þjóð- félagsins. Í dag eru á þriðja þúsund félags- menn í Siðmennt sem er innan við eitt prósent af þjóðinni. Hins vegar hefur fjölgað hratt í félaginu og til samanburðar má nefna að árið 2014 voru félagsmenn einungis rúmlega sex hundruð. Íslendingar leita í síauknum mæli í þjónustu Siðmenntar og má sérstaklega nefna að borgaralegar fermingar hafa verið mjög vinsælar. Selma er nýtekin við stöðu athafnarstjóra á höfuðborgarsvæð- inu og sinnir öllum athöfnum sem í boði eru. Selma er ein af ást- sælustu leik- og söngkonum landsins. Meðal annars söng hún tvívegis fyrir Íslands hönd í Eurovision og lenti í öðru sæti árið 1999. Á heimasíðu Siðmenntar segir hún að hana langi til að gefa af sér á mikilvægum stundum í lífi fólks. Hörður Torfason hefur verið athafnarstjóri hjá Siðmennt frá árinu 2012, um það leyti sem félagið fékk lögformlega skrán- ingu og vígsluréttindi. Hörður sá um fyrstu giftingu samkynhneigðra á Íslandi sumarið 2012 en hann hefur einmitt lengi verið baráttumaður í þeim málaflokki. Mörður var einn af þeim þing- mönnum sem vöktu athygli árið 2010 fyrir að sækja hugvekju Siðmenntar í stað messu í upphafi þings. Þá var hann þingmaður Samfylkingarinnar. Hinir voru Katrín Jakobsdóttir, Árni Þór Sigurðsson og Skúli Helgason. Mörður er einn af fremstu íslenskumönnum landsins og hefur meðal annars gefið út íslenska orðabók. Lögmaðurinn og leikkonan Helga Vala Helgadóttir hefur verið athafnarstjóri síðan árið 2016 og sinnir öllum athöfnum í Reykjavík. Helga hafði tveim- ur árum áður fengið viður- kenningu frá félaginu fyrir störf í þágu mannréttinda. Árið 2017 tók Helga Vala sæti á Alþingi fyrir Samfylkinguna. Hákon er ungur lífskúnstner sem samkvæmt heimasíðu Siðmenntar geymir bónda í hjarta sér. Nýlega tók hann við stöðu sem athafnarstjóri á Austurlandi. Hákon rekur Hildibrand hótel í Neskaupstað ásamt eiginmanni sínum. Þá er hann einnig þekktur sem dragdrottningin Hákon Hildibrand. Gylfi hefur verið athafnarstjóri síðan árið 2015 á Ísafirði. Hann er heilsuhagfræðingur og tók nýlega við stöðu sjúkrahússtjóra þar í bæ. Gylfi er þunga- vigtarmaður innan Viðreisnar. Hann starfaði áður sem aðstoðarmaður Benedikts Jóhannessonar fjár- málaráðherra og seinna var hann oddviti flokksins í Norðvesturkjördæmi, en náði ekki inn á þing. Margrét er vel þekkt úr bæjarstjórnarpólitíkinni í Hafnarfirði en þar sat hún lengi fyrir Samfylk- inguna. Þá hefur hún einnig tekið sæti á Alþingi sem varaþingmaður. Íslendingar kynntust Margréti fyrst í Söngvakeppni Sjónvarpsins árið 1988. Þá söng hún Sólarsömbu með föður sínum Magnúsi Kjartanssyni. Margrét hefur verið athafnarstjóri á höfuðborgar- svæðinu síðan 2016 og sinnir öllum athöfnum. Anna Pála var mjög áberandi í þjóðfé- lagsumræðunni fyrir nokkrum árum. Um tíma var hún vara- þingmaður fyrir Sam- fylkinguna og tók sæti á Alþingi. Þá var hún einnig formaður Sam- takanna ’78. Anna Pála er athafnarstjóri í Reykjavík og sinnir öllu nema útförum. SELMA BJÖRNS- DÓTTIR MÖRÐUR ÁRNASON HELGA VALA HELGADÓTTIR ANNA PÁLA SVERRISDÓTTIR HÁKON GUÐRÖÐARSON HÖRÐUR TORFASON GYLFI ÓLAFSSON MARGRÉT GAUJA MAGNÚSDÓTTIR Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.