Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Page 74
74 FÓLK 7. desember 2018
Hólshraun 3, 220 Hafnarfjörður / S 555 18 10 og 565 1810 / veislulist@veislulist.is / veislulist.is
Afgreitt á einnota fötum, tilbúið fyrir veisluna
HRINGDU OG PANTAÐU Í SÍMA 555 1810
Jólahlaðborð 2018
V e i s l u r e r u o k k a r l i s t !
PINNAMATUR
Siðmenntar
n Sjá um nafngiftir, fermingar, giftingar og útfarir n Eurovision-stjörnur og þingmenn
A
thafnarstjórar eru þau
kölluð sem stýra athöfnum
lífsskoðunarfélagsins Sið-
menntar, félags siðrænna
húmanista. Sjá þau um nafngift-
ir, fermingar, giftingar og útfarir
líkt og prestar og klerkar í öðrum
trúfélögum. Athygli vekur hversu
margir af athafnarstjórunum eru
nafntogaðir einstaklingar. Frægt
fólk úr hinum ýmsu geirum þjóð-
félagsins.
Í dag eru á þriðja þúsund félags-
menn í Siðmennt sem er innan við
eitt prósent af þjóðinni. Hins vegar
hefur fjölgað hratt í félaginu og til
samanburðar má nefna að árið
2014 voru félagsmenn einungis
rúmlega sex hundruð. Íslendingar
leita í síauknum mæli í þjónustu
Siðmenntar og má sérstaklega
nefna að borgaralegar fermingar
hafa verið mjög vinsælar.
Selma er nýtekin við
stöðu athafnarstjóra
á höfuðborgarsvæð-
inu og sinnir öllum
athöfnum sem í boði
eru. Selma er ein af ást-
sælustu leik- og söngkonum landsins.
Meðal annars söng hún tvívegis fyrir
Íslands hönd í Eurovision og lenti í öðru
sæti árið 1999. Á heimasíðu Siðmenntar
segir hún að hana langi til að gefa af sér
á mikilvægum stundum í lífi fólks.
Hörður Torfason hefur
verið athafnarstjóri hjá
Siðmennt frá árinu 2012,
um það leyti sem félagið
fékk lögformlega skrán-
ingu og vígsluréttindi.
Hörður sá um fyrstu
giftingu samkynhneigðra
á Íslandi sumarið 2012 en
hann hefur einmitt lengi
verið baráttumaður í þeim
málaflokki.
Mörður var einn af þeim þing-
mönnum sem vöktu athygli árið
2010 fyrir að sækja hugvekju
Siðmenntar í stað messu í
upphafi þings. Þá var hann
þingmaður Samfylkingarinnar.
Hinir voru Katrín Jakobsdóttir,
Árni Þór Sigurðsson og Skúli
Helgason. Mörður er einn af
fremstu íslenskumönnum
landsins og hefur meðal annars
gefið út íslenska orðabók.
Lögmaðurinn og leikkonan
Helga Vala Helgadóttir hefur
verið athafnarstjóri síðan árið
2016 og sinnir öllum athöfnum
í Reykjavík. Helga hafði tveim-
ur árum áður fengið viður-
kenningu frá félaginu fyrir
störf í þágu mannréttinda.
Árið 2017 tók Helga Vala sæti á
Alþingi fyrir Samfylkinguna.
Hákon er ungur lífskúnstner sem samkvæmt heimasíðu
Siðmenntar geymir bónda í hjarta sér. Nýlega tók hann
við stöðu sem athafnarstjóri á Austurlandi. Hákon
rekur Hildibrand hótel í Neskaupstað ásamt eiginmanni
sínum. Þá er hann einnig þekktur sem dragdrottningin
Hákon Hildibrand.
Gylfi hefur verið athafnarstjóri síðan árið 2015 á
Ísafirði. Hann er heilsuhagfræðingur og tók nýlega
við stöðu sjúkrahússtjóra þar í bæ. Gylfi er þunga-
vigtarmaður innan Viðreisnar. Hann starfaði áður
sem aðstoðarmaður Benedikts Jóhannessonar fjár-
málaráðherra og seinna var hann oddviti flokksins í
Norðvesturkjördæmi, en náði ekki inn á þing.
Margrét er vel þekkt úr bæjarstjórnarpólitíkinni
í Hafnarfirði en þar sat hún lengi fyrir Samfylk-
inguna. Þá hefur hún einnig tekið sæti á Alþingi sem
varaþingmaður. Íslendingar kynntust Margréti fyrst
í Söngvakeppni Sjónvarpsins árið 1988. Þá söng hún
Sólarsömbu með föður sínum Magnúsi Kjartanssyni.
Margrét hefur verið athafnarstjóri á höfuðborgar-
svæðinu síðan 2016 og sinnir öllum athöfnum.
Anna Pála var mjög
áberandi í þjóðfé-
lagsumræðunni fyrir
nokkrum árum. Um
tíma var hún vara-
þingmaður fyrir Sam-
fylkinguna og tók sæti
á Alþingi. Þá var hún
einnig formaður Sam-
takanna ’78. Anna
Pála er athafnarstjóri
í Reykjavík og sinnir
öllu nema útförum.
SELMA
BJÖRNS-
DÓTTIR
MÖRÐUR ÁRNASON
HELGA VALA
HELGADÓTTIR
ANNA PÁLA
SVERRISDÓTTIR
HÁKON GUÐRÖÐARSON
HÖRÐUR
TORFASON
GYLFI ÓLAFSSON
MARGRÉT GAUJA
MAGNÚSDÓTTIR
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is