Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Síða 82

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Síða 82
82 7. desember 2018 Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202 Ryðga ekki Brotna ekki HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt upplýsti hana um áform sín hvað það varðaði. Elsie sá í hendi sér að hætta var á að framtíðardraumar henn- ar breyttust í martröð og komst að þeirri niðurstöðu að hún yrði að grípa til aðgerða. Föstudaginn 5. desember ein- setti hún sér að leiða þetta mál til lykta í eitt skipti fyrir öll. Þá tók hún lestina til Crowborough og gekk þaðan að býlinu. Var það í síðasta skipti sem hún sást á lífi. Elsie horfin Þann 10. desember fékk Norman símskeyti frá föður Elsie; vissi Norman eitthvað um ferðir henn- ar eða hvar hún héldi til. Norman svaraði á þann veg að hann hefði ekkert séð hana. Næsta dag hafði faðir Elsie samband við lögregluna og upplýsti hana um hvarf Elsie. Það tók lögregluna ekki langan tíma að fá staðfest að sést hefði til ferða Elsie á leið hennar til býlis- ins. Tveir blómabændur höfðu séð hana, haldandi á skjalatösku, um klukkan korter yfir fimm síðdegis þann 5. desember. Þrátt fyrir þennan vitnisburð fullyrti Norman að Elsie hefði aldrei komið á býlið umræddan dag. Norman handtekinn Dagarnir liðu og ekkert spurð- ist til Elsie og í byrjun janúar fór lögreglan til nágranna Normans, Annie Price. Hún var viss í sinni sök; Elsie hafði gengið inn á býli Normans daginn sem hún hvarf. Lögreglan í Sussex ákvað þá að tímabært væri að leita aðstoðar Scotland Yard og aðalvarðstjór- inn Gillan mætti á svæðið og tók við rannsókninni. Gillan íhugaði það sem lá fyrir og ákvað að hand- taka Norman og í kjölfarið leita á býlinu. Í dós fann lögreglan úr, arm- band og eitthvert skart úr eigu Elsie og sneri sér að útihúsun- um. Að þeirri leit lokinni upphófst gröftur. Norman opnar sig Lánið lék við lögregluna og inn- an skamms fannst taska Elsie og urðu þá straumhvörf í málinu. Norman sagði rannsóknarlög- reglumönnunum að hann hefði ekki orðið Elsie að bana, en hann gæti vísað þeim á staðinn þar sem hún var grafin. Norman sagði að hún hefði komið óvænt þann 5. desember. Hún hefði verið æst og sagt að hún myndi dvelja á býlinu þar til þau yrðu gift. Hann hefði þá sagt henni frá þeim tilfinningum sem hann bar til Bessie og þau rifist vegna þess. Norman sagði að hann hefði þá þegar verið búinn að mæla sér mót við Bessie og móður hennar og hann hefði farið af býlinu klukkan hálf tíu um kvöldið. Elsie hefði orðið eftir á býlinu. Sjálfsmorð, segir Norman Þegar Norman kom heim tveimur tímum síðar sá hann, að eig- in sögn, að Elsie hafði notað þvottasnúrurnar til að hengja sig. Hann hefði skorið hana niður, sest niður og velt fyrir sér hvað til bragðs skyldi taka. „Ég náði í sögina mína og sag- aði af henni fótleggina og höfuðið,“ sagði Norman og bætti við að hann hefði grafið líkams leifarnar í einni hænsnagirðingunni. Læknirinn sem framkvæmdi líkskoðunina sagði að hvergi væri að finna ummerki sem bentu til þess að reipi hefði herst að hálsin- um. Norman var þá ákærður fyrir morð. Dauðadómur Við réttarhöldin, sem hófust 4. mars, 1925, mótmælti læknir á vegum verjanda því að engin um- merki hefðu verið sjáanleg á hálsi Elsie, þar hefðu verið sár sem hugsanlega væru eftir reipi. Í skýrslu lögreglunnar kom fram að loftbitarnir hefðu verið skoðaðir og hvergi hægt að sjá að reipi hefði herst að nokkrum þeirra. Þann 16. mars var kveðinn upp sektardómur og Norman dæmdur til dauða. Þann 22. apríl, tveimur dögum fyrir það sem hefði orðið 27. afmælisdagur Elsie, var Norman Thorne hengdur. n Grafið í hænsnagirðingu Norman vísaði lögreglu á líkamsleifar Elsie. „Ég náði í sögina mína og sagaði af henni fótleggina og höfuðið 20 ár afplánaði Nýsjálendingurinn David Tamihere fyrir morðin á Heidi Paa-konaan, 21 árs, og kærasta hennar, Urban Hoglan, 23 ára, sænskum túrist-um sem voru á ferðalagi í Coromandel árið 1989. Parið hvarf á gönguför um Coromandel-skagann og Tamihere viðurkenndi að hafa stolið bifreið þess. Tamihere var ákærður fyrir morðin og dæmdur í lífstíðarfangelsi í desember 1990, þrátt fyrir að ekki hefði fundist tangur né tetur af Heidi og Urban. Það voru þrír samfangar Tamihere sem voru burðarásinn í vitnaleiðslum ákæruvaldsins, en að þeirra sögn viðurkenndi Tamihere fyrir þeim að hafa banað sænska parinu. Lík Urbans fannst árið 1991, en líkamsleifar Heidi hafa aldrei komið í leitirnar. David Tamihere var ekki ókunnur ofbeldi; hann myrti nektardansara að nafni Mary Barcham árið 1972, réðst á 62 ára gamla konu á heimili hennar árið 1985 og státar að auki af þónokkrum dómum vegna kyn- ferðislegs ofbeldis og líkamsárása. Elsie og Norman Þónokkur aldursmunur var á hjónaleysunum og áherslur ólíkar. Mynd: Getty
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.