Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Síða 86
86 FÓLK 7. desember 2018
Samfélagsmiðlabörnin
Aron Mola og Hildur – Aron
Már Ólafsson, einnig þekktur sem
Aron Mola, og Hildur Skúladóttir
byrjuðu árið með stæl þegar þau
buðu frumburðinn Birni Blæ vel-
kominn í janúar. Aron sem er
samfélagsmiðlastjarna, leikari og
barnabókarhöfundur hefur barist
fyrir því að karlmenn opni sig um
tilfinningar sínar og stóðu hann og
Hildur nýlega fyrir útgáfu barna-
bókar um björninn Tilfinninga-
-Blæ sem á að fræða ung börn um
tilfinningar. Má því ætla að Birnir
Blær fái gott og heilnæmt tilfinn-
ingalegt uppeldi og veigri sér ekki
við að gráta, því það er víst svo að
allir gráta.
Edikkonan Sólrún Diegó og
unnusti hennar, Frans Veigar
Garðarsson, eignuðust son í
febrúar. Fyrir áttu þau dótturina
Maísól. Þau hjú komust svo aftur
í fréttirnar í september þegar þau
keyptu 320 fermetra einbýlishús
í Mosfellsbæ á um 100 milljónir
króna. Það ætti því ekki að fara illa
um fjölskylduna þrátt fyrir stækk-
un á árinu.
Þórunn Ívars og Harry – Áhrifa-
valdurinn Þórunn Ívarsdóttir og
unnusti hennar, Harry Samsted,
eignuðust dóttur í september. Þór-
unn hafði áður talað opinberlega
um baráttu sína við legslímuflakk
sem gerði henni erfitt að verða
barnshafandi.
Rithöfundabörnin
Þórdís Elva og Víðir – Þórdís
Elva Þorvaldsdóttir og Víðir Guð-
mundsson urðu fyrir tvöföldu
barnaláni þegar þau eignuðust
glæsilega tvíburadrengi í maí.
Meðgangan gekk ekki áfallalaust
fyrir sig, en Þórdís missti vatnið á
17 viku meðgöngu. Við tók mikið
óvissutímabil þar sem ófyrirséð
var hvernig færi. Drengirnir hafa
þó erft baráttumóð móðurinnar
og komu öllum rækilega á óvart
þegar þeir mættu í heiminn, til-
búnir að taka slaginn.
Tobba og Kalli – Rithöfundurinn
og fjölmiðlakonan Tobba Marinos
og Baggalúturinn Karl Sigurðsson
eignuðust aðra dóttur í október
en fyrir áttu þau eina fjögurra ára.
Það var þó ekki eina afrek Tobbu
á árinu því hún sendi frá sér bók
í samstarfi við Hildi Harðardóttur
fæðingarlækni og Aðalbjörn Þor-
steinsson, gjörgæslu- og svæf-
ingarlækni, í apríl sem heitir
Gleðilega fæðingu. Bókin er upp-
flettirit fyrir foreldra og í henni
er farið yfir það allra helsta sem
þarf að hafa í huga þegar farið er á
fæðingardeildina.
Ævar vísindamaður og Védís
– Ævar Þór Benediktsson leikari
og unnusta hans, Védís Kjartans-
dóttir, buðu frumburðinn velkom-
inn í ágúst. Ævar er einn ástsæl-
asti barnabókarhöfundur landsins
og hefur meðal annars hvatt börn
til að taka þátt í lestrarátaki til að
stuðla að betra læsi barna. Fáir
hafa gleymt hliðarpersónuleika
hans, Ævari vísindamanni, sem
sýndi börnum landsins að vís-
indi eru hipp og kúl. Nýjasta bók-
in hans, Þitt eigið tímaferða-
lag, kom út í haust en í þeirri bók
bregða lesendur sér í hlutverk að-
alpersónu bókarinnar og þurfa að
taka erfiðar ákvarðanir sem áhrif
hafa á söguþráðinn.
Grínistabörnin
Bergur Ebbi og Rán – Hjón-
in Bergur Ebbi Benediktsson og
Rán Ingvarsdóttir eignuðust son
í febrúar. Sonurinn er þriðja barn
þeirra og verður því að líkindum
mikið stuð á þeim bænum næstu
árin. Bergur Ebbi var á árinu kjör-
inn í stjórn UN Women á Íslandi
og bætir því á langan lista afreka,
en hann er rithöfundur, leikari,
lögfræðingur, framtíðarfræðing-
ur, uppistandari og líklegast hefur
hann fleiri titla. Bergur eiginlega
bara hlýtur að þurfa að láta prenta
nafnspjöldin sín í stærð A4.
Saga og Snorri – Leikkonan Saga
Garðarsdóttir og tónlistarmaður-
inn Snorri Helgason eignuðust sitt
fyrsta barn í febrúar, hana Eddu
Kristínu. Þau gerðu svo gott bet-
ur og gengu í hjónaband í ágúst.
Dóttin mun líklega hljóta valdefl-
andi uppeldi en Saga var til dæm-
is á þessu ári önnur fundarstýra
samstöðufundarins á kvennafrí-
daginn, var með fyrirlestur á jafn-
réttisdögum Háskólans á Akureyri
og vakti athygli á því að henni byð-
ust lægri laun fyrir uppistand hen-
ur en karlkyns kollegum hennar.
Ari Eldjárn og Linda – Ari Eld-
járn og kona hans, Linda Guð-
rún Karlsdóttir, eignuðust dóttur
í ágúst. Fyrir áttu þau dóttur-
ina Arneyju Díu. Ari tók þátt í
Reykjavíkurmaraþoni Íslands-
banka sama dag og dóttirin mætti
á svæðið til að safna áheitum fyrir
minningarsjóð bróður síns, Krist-
jáns Eldjárns. Ætli parið hafi rif-
ist í lok dags um hvort þeirra væri
þreyttara ?
Og enn fleiri börn !
Hildur Eik Ævarsdóttir, eigandi
Norom, og eiginmaður hennar,
Kristján Ólafsson, eigandi Helix
vodka, eignuðust dóttur í október.
Þarna var gullið tækifæri til að fá
fyrsta Íslendinginn sem bæri ann-
aðhvort nafnið Norix eða Helrom,
en samkvæmt heimildum DV
ákváðu hjónin að láta þetta ágæta
tækifæri framhjá sér fara.
Silli Geirdal og Ólöf Erla –
Bassa leikari hljómsveitarinnar
Dimmu og kona hans, Ólöf Erla
Einarsdóttir, eignuðust son í nóv-
ember. Fæðingin gekk svo áfalla-
laust fyrir sig að Ólöf Erla tók sjálf
á móti drengnum, verkjalyfjalaus.
Þvílíkur nagli. Á meðgöngunni vís-
uðu foreldrarnir til laumufarþeg-
ans og því má ætla að um óvænta
en velkomna viðbót í fjölskylduna
hafi verið að ræða. n
Frækileg fjölgun frægra á árinu
Þekktir Íslendingar hafa
lagt sitt af mörkum við
fjölgun landans á þessu
ári. Blaðamaður tók
saman nokkur dæmi um
barnalán þekktra lands-
manna á þessu herrans
ári, 2018.
Hildur og Kristján
sem eiga ekki barn
að nafni Norix eða
Helrom.
Nýja Bók Ævars
hefur fengið góðar
viðtökur.
Snorri
og Saga
ásamt
barni sínu.
Tobba Marinós
ásamt Karli sínum.
Þórdís Elva með syni sína.
Þórunn og Harry
ásamt dóttur sinni.
Sólrún
Diego
ásamt
börnum
sínum.
Aron með
Birni Blæ
Ari með
dóttur sína
nýfædda í
fanginu.
Stoltir foreldrar
laumufarþegans.
Erla Dóra
erladora@dv.is