Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Qupperneq 86

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Qupperneq 86
86 FÓLK 7. desember 2018 Samfélagsmiðlabörnin Aron Mola og Hildur – Aron Már Ólafsson, einnig þekktur sem Aron Mola, og Hildur Skúladóttir byrjuðu árið með stæl þegar þau buðu frumburðinn Birni Blæ vel- kominn í janúar. Aron sem er samfélagsmiðlastjarna, leikari og barnabókarhöfundur hefur barist fyrir því að karlmenn opni sig um tilfinningar sínar og stóðu hann og Hildur nýlega fyrir útgáfu barna- bókar um björninn Tilfinninga- -Blæ sem á að fræða ung börn um tilfinningar. Má því ætla að Birnir Blær fái gott og heilnæmt tilfinn- ingalegt uppeldi og veigri sér ekki við að gráta, því það er víst svo að allir gráta. Edikkonan Sólrún Diegó og unnusti hennar, Frans Veigar Garðarsson, eignuðust son í febrúar. Fyrir áttu þau dótturina Maísól. Þau hjú komust svo aftur í fréttirnar í september þegar þau keyptu 320 fermetra einbýlishús í Mosfellsbæ á um 100 milljónir króna. Það ætti því ekki að fara illa um fjölskylduna þrátt fyrir stækk- un á árinu. Þórunn Ívars og Harry – Áhrifa- valdurinn Þórunn Ívarsdóttir og unnusti hennar, Harry Samsted, eignuðust dóttur í september. Þór- unn hafði áður talað opinberlega um baráttu sína við legslímuflakk sem gerði henni erfitt að verða barnshafandi. Rithöfundabörnin Þórdís Elva og Víðir – Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og Víðir Guð- mundsson urðu fyrir tvöföldu barnaláni þegar þau eignuðust glæsilega tvíburadrengi í maí. Meðgangan gekk ekki áfallalaust fyrir sig, en Þórdís missti vatnið á 17 viku meðgöngu. Við tók mikið óvissutímabil þar sem ófyrirséð var hvernig færi. Drengirnir hafa þó erft baráttumóð móðurinnar og komu öllum rækilega á óvart þegar þeir mættu í heiminn, til- búnir að taka slaginn. Tobba og Kalli – Rithöfundurinn og fjölmiðlakonan Tobba Marinos og Baggalúturinn Karl Sigurðsson eignuðust aðra dóttur í október en fyrir áttu þau eina fjögurra ára. Það var þó ekki eina afrek Tobbu á árinu því hún sendi frá sér bók í samstarfi við Hildi Harðardóttur fæðingarlækni og Aðalbjörn Þor- steinsson, gjörgæslu- og svæf- ingarlækni, í apríl sem heitir Gleðilega fæðingu. Bókin er upp- flettirit fyrir foreldra og í henni er farið yfir það allra helsta sem þarf að hafa í huga þegar farið er á fæðingardeildina. Ævar vísindamaður og Védís – Ævar Þór Benediktsson leikari og unnusta hans, Védís Kjartans- dóttir, buðu frumburðinn velkom- inn í ágúst. Ævar er einn ástsæl- asti barnabókarhöfundur landsins og hefur meðal annars hvatt börn til að taka þátt í lestrarátaki til að stuðla að betra læsi barna. Fáir hafa gleymt hliðarpersónuleika hans, Ævari vísindamanni, sem sýndi börnum landsins að vís- indi eru hipp og kúl. Nýjasta bók- in hans, Þitt eigið tímaferða- lag, kom út í haust en í þeirri bók bregða lesendur sér í hlutverk að- alpersónu bókarinnar og þurfa að taka erfiðar ákvarðanir sem áhrif hafa á söguþráðinn. Grínistabörnin Bergur Ebbi og Rán – Hjón- in Bergur Ebbi Benediktsson og Rán Ingvarsdóttir eignuðust son í febrúar. Sonurinn er þriðja barn þeirra og verður því að líkindum mikið stuð á þeim bænum næstu árin. Bergur Ebbi var á árinu kjör- inn í stjórn UN Women á Íslandi og bætir því á langan lista afreka, en hann er rithöfundur, leikari, lögfræðingur, framtíðarfræðing- ur, uppistandari og líklegast hefur hann fleiri titla. Bergur eiginlega bara hlýtur að þurfa að láta prenta nafnspjöldin sín í stærð A4. Saga og Snorri – Leikkonan Saga Garðarsdóttir og tónlistarmaður- inn Snorri Helgason eignuðust sitt fyrsta barn í febrúar, hana Eddu Kristínu. Þau gerðu svo gott bet- ur og gengu í hjónaband í ágúst. Dóttin mun líklega hljóta valdefl- andi uppeldi en Saga var til dæm- is á þessu ári önnur fundarstýra samstöðufundarins á kvennafrí- daginn, var með fyrirlestur á jafn- réttisdögum Háskólans á Akureyri og vakti athygli á því að henni byð- ust lægri laun fyrir uppistand hen- ur en karlkyns kollegum hennar. Ari Eldjárn og Linda – Ari Eld- járn og kona hans, Linda Guð- rún Karlsdóttir, eignuðust dóttur í ágúst. Fyrir áttu þau dóttur- ina Arneyju Díu. Ari tók þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslands- banka sama dag og dóttirin mætti á svæðið til að safna áheitum fyrir minningarsjóð bróður síns, Krist- jáns Eldjárns. Ætli parið hafi rif- ist í lok dags um hvort þeirra væri þreyttara ? Og enn fleiri börn ! Hildur Eik Ævarsdóttir, eigandi Norom, og eiginmaður hennar, Kristján Ólafsson, eigandi Helix vodka, eignuðust dóttur í október. Þarna var gullið tækifæri til að fá fyrsta Íslendinginn sem bæri ann- aðhvort nafnið Norix eða Helrom, en samkvæmt heimildum DV ákváðu hjónin að láta þetta ágæta tækifæri framhjá sér fara. Silli Geirdal og Ólöf Erla – Bassa leikari hljómsveitarinnar Dimmu og kona hans, Ólöf Erla Einarsdóttir, eignuðust son í nóv- ember. Fæðingin gekk svo áfalla- laust fyrir sig að Ólöf Erla tók sjálf á móti drengnum, verkjalyfjalaus. Þvílíkur nagli. Á meðgöngunni vís- uðu foreldrarnir til laumufarþeg- ans og því má ætla að um óvænta en velkomna viðbót í fjölskylduna hafi verið að ræða. n Frækileg fjölgun frægra á árinu Þekktir Íslendingar hafa lagt sitt af mörkum við fjölgun landans á þessu ári. Blaðamaður tók saman nokkur dæmi um barnalán þekktra lands- manna á þessu herrans ári, 2018. Hildur og Kristján sem eiga ekki barn að nafni Norix eða Helrom. Nýja Bók Ævars hefur fengið góðar viðtökur. Snorri og Saga ásamt barni sínu. Tobba Marinós ásamt Karli sínum. Þórdís Elva með syni sína. Þórunn og Harry ásamt dóttur sinni. Sólrún Diego ásamt börnum sínum. Aron með Birni Blæ Ari með dóttur sína nýfædda í fanginu. Stoltir foreldrar laumufarþegans. Erla Dóra erladora@dv.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.