Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Side 88
7. desember 2018
47. tölublað 108. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Ég skil
ekki neitt
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | Helgar 11–17 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Spennutryllir úr samtímanum
eftir Lilju Sigurðardóttur sem
var nýlega tilnefnd til breska
Gullrýtingsins, einhverra virtustu
glæpasagnaverðlauna heims
Hörkuspennandi og hröð
saga með pólitísku ívafi í
anda Borgen
SPENNUTRYLLIR
AF BESTU GERÐ
„... sannfærandi, kraftmikil og áhugaverð
spennusaga ...“
E R L A M A R Í A M A R K Ú S D Ó T T I R / M O R G U N B L A Ð I Ð
„... heldur lesandanum við efnið með vel
uppbyggðri fléttu og áhugaverðum persónum.“
B R Y N H I L D U R B J Ö R N S D Ó T T I R / F R É T T A B L A Ð I ÐLítt þekkt
ættartengsl
Sjónvarpsmaðurinn
og handboltakappinn
S
jónvarpsmaðurinn Ein-
ar Þorsteinsson hjá
Ríkisútvarpinu hef-
ur undanfarin ár stað-
ið vaktina í sjónvarpsfréttum
sem og Kastljósi. Á dögunum
tók hann viðtal við Gunnar
Braga Sveinsson vegna Klaust-
ursmálsins svokallaða og stóð
sig afburða vel í að þjarma
að þingmanninum. Desem-
ber er góður mánuður fyr-
ir Einar en hann er sennilega
þekktasti Íslendingurinn sem
er fæddur 24. desember. Færri
vita af tengslum Einars við
besta handboltamann Íslands-
sögunnar, Ólaf Stefánsson,
sem undanfarið hefur getið
sér gott orð sem fyrirlesari og
gjörningalistamaður. Ólafur
er kvæntur systur
Einars, Kristínu
Soffíu Þorsteins-
dóttur, og eru
kapparn-
ir því
mágar.
Hver er elsta jólagjöfin sem
þú átt enn?
„Þegar ég fékk gjöfina góðu
var ég þriggja ára og átti þrjú
yngri systkini.
Pabbi var alltaf á
fundum í útlönd-
um og varkár í fjár-
málum. Jón afi gaf
Lilju Heiðu ein jólin og næstu
jól dúkkuvagn, því hún var svo
fögur. Trausti vildi keyra vagn-
inn og Lilja reiddi hönd til
höggs, til er ljósmynd af því.
Pakkinn minn var stór.
Ég settist á gólfið við jólatréð
og bjó mig undir að opna pakk-
ann. Þá segir einhver að þetta
sé dýr og ég sá að þetta var
alvöru skinn. Ég fór að gráta.
Dáið dýr. Á að gefa mér það!
Þetta var grár kanínupels.
Hlýr og yndislegur. Þarna lærði
ég að faðir minn elskaði mig.
Þótt væri svo „ljót“ að ég ætti
aldrei dúkku skilið. Þið skiljið.“
Elsta jólagjöf
Þórunnar
Listakonan Magga gefur listaverk til styrktar góðum málefnum
L
istakonan Margrét Ósk Hild-
ur Hallgrímsdóttir, eða
Magga eins og hún er oft-
ast kölluð, er sjálfmenntuð
í myndlistinni og hefur haft nóg
að gera í fjölbreyttum verkefnum.
En auk þess að skapa lætur Magga
líka gott af sér leiða og seldi nýlega
verk til styrktar Krabbameinsfélagi
Íslands og gaf annað til Villikatta,
sem félagið selur til styrktar Há-
koti.
„Mamma segir að ég hafi byrjað
að teikna um leið og ég gat haldið
á blýanti,“ sagði Magga í viðtali við
DV í fyrra og sagði innblásturinn
koma alls staðar að. Hún teiknar
mest með penna eða blýanti, en
málar einnig akrýlmyndir og vegg-
myndir. „Flestar hugmyndirnar fæ
ég á kvöldin og nóttunni.“
Magga hefur málað mynd-
ir á veggi hótela og veitingastaða
bæði í Reykjavík og á Siglufirði. Og
myndir hennar prýða líka fjölmörg
íslensk heimili og eins og sjá má á
síðu hennar á Facebook, þá eru
þær af ýmsum toga. Magga hefur
gert tvær seríur; Stjörnumerkja-
seríuna og Tvímyndaseríuna. Þá
fyrri prýða, eins og nafnið gefur til
kynna, 12 myndir af stjörnumerkj-
unum og í þeirri seinni eru komn-
ar sjö myndir. „Innblásturinn
að tvímynda seríunni er íslenskt
landslag og lífríki,“ segir Magga,
sem vinnur seríuna í Photoshop.
Fölbleikur október, ágóði rann
til Krabbameinsfélags Íslands.