Tímarit Máls og menningar - 01.02.2018, Blaðsíða 17
H ú n va r r e i ð
TMM 2018 · 1 17
Ertu femínisti?
Já, skoðanalega, en ég nota ekki orðið um sjálfa mig. Fólk kallar mig hin-
segin, kjörbarn, litaða manneskju. Hún er reið er mjög femínískt verk. Já …
það sem ég geri og hvernig ég hugsa … já – ég er femínisti.
Eiga hinsegin höfundar eitthvað sameiginlegt?
Já, þeir skrifa útfrá stöðu sem er utanvið normið en þeir gera það á jafn
ólíka vegu og þeir eru margir, á tilraunakenndari hátt, á hefðbundnari veg,
með prósum, ljóðum og hvaðeina. En margir fleiri höfundar standa utanvið
normið, litað fólk sem býr í vestrænu samfélagi, fólk sem stríðir við andleg
veikindi, fólk sem býr við útskúfun.
Hvernig gerist maður rithöfundur í Danmörku?
Sumir fara í Rithöfundaskólann einsog ég gerði. Þar fær maður tækifæri til
að skrifa og lesa og kynnast öðrum rithöfundum. Margir fara líka aðra leið,
senda inn handrit beint til útgefanda og það fæst gefið út.
Þið hafið launasjóð rithöfunda – er auðvelt að fá styrk?
Hafir þú gefið út bækur og þær fengið athygli og góða dóma þá er það ekki
svo erfitt. Maður sækir árlega um. Svo getur maður fengið verðlaun.
Er öðruvísi að vera rithöfundur af kvenkyni en af karlkyni? Hver er munur
á stöðu karl- og kvenhöfunda?
Það er öðruvísi að vera karl en kona og líklega er þess vegna munur á að
vera kvenhöfundur og karl-. Bókmenntasenunni hefur verið stýrt af karl-
mönnum einsog svo mörgum öðrum svæðum samfélagsins en á meðal ungra
rithöfunda í Danmörku eru nú fleiri konur en karlar, bæði krakkarnir sem
ganga í Rithöfundaskólann og höfundar útgefinna bóka. Ætli þetta sé ekki
að breytast?
Heldur þú að stéttaruppruni manns skipti máli fyrir mann til að verða
rithöfundur?
Já, algjörlega. Hvítt fólk sem kemur úr mið- og efri stéttunum ræður
ríkjum í hópi rithöfunda í Danmörku, sjálf kem ég úr miðstétt. Venjulega
vinnur þú þér ekki inn fyrir háum launum sem rithöfundur. Stundum þarftu
fjárstuðning og þá auðveldar þér lífið að eiga stönduga að.
En skiptir (prívat) félagsskapur máli fyrir lífsbaráttu rithöfunda?
Já, allar manneskjur þurfa að vera í nánum tengslum við fólk, líka rithöf-
undar.
***