Tímarit Máls og menningar - 01.02.2018, Side 99
S a m s t æ ð s a k a m á l
TMM 2018 · 1 99
ég í samráði við Kristján á fund dómsmálaráðherra til að greina honum frá
fundi okkar Kristjáns og til að hvetja ráðherra til að hlutast til um að Kristján
fengi að leysa frá skjóðunni án þess að baka sér vandræði.4 Kristján veiktist
skömmu síðar, missti meðvitund og lézt 4. janúar 2011.5
Ekkert af þessu þurfti að koma á óvart. Ég lýsti vandanum svo í Frétta-
blaðinu 26. febrúar 2009:6
„Lögbrot hafa lengi verið látin viðgangast á Íslandi. Sigurður Nordal pró-
fessor vitnar um vandann í Skírni 1925. Bjarni Benediktsson, síðar forsætis-
ráðherra, ber vitni í einkabréfum 1934 og þannig áfram. Margir vissu, en
enginn gerði neitt; þess vegna héldu lögbrotin áfram. Brottkast7 og löndun
fram hjá vigt viðgangast í stórum stíl samkvæmt ítrekuðum frásögnum
sjómanna, en lögreglan hefst ekki að. Innherjaviðskipti í bönkunum voru
algeng, svo sem vottar munu trúlega staðfesta við Rannsóknarnefnd Alþingis
og sérstakan saksóknara, en lögreglan horfir í aðrar áttir. Fyrrum banka-
stjóri Landsbankans hefur árum saman í grein8 eftir grein9 í blöðunum borið
þungar sakir10 á nafngreinda bankamenn, en löggan hrýtur.“
Nýjar uppljóstranir RÚV11 vitna um Fiskistofu sem virðist viðmóta mátt-
laus og Fjármálaeftirlitið var fram að hruni svo sem Rannsóknarnefnd
Alþingis lýsir í skýrslu sinni enda var þv. forstjóri FME í hópi þeirra sjö
manna sem RNA taldi hafa gert sig seka um vanrækslu í skilningi laga.12
III. Kaup kaups
Lögbrotin sem Sigurður Nordal og Bjarni Benediktsson vitnuðu um ýttu
líkt og hermangið síðar undir siðaveiklun stjórnmálastéttarinnar. Ýmislegt
annað lagðist á sömu sveif. Vitað var að margir heildsalar og aðrir geymdu
umboðslaun o.fl. í útlöndum þótt lögin leyfðu það ekki. Panama-skjölin
drógu vorið 2016 a.m.k. einn slíkan reikning fram í dagsljósið, reikning undir
stjórn borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.13 Þjóðviljinn hneykslaðist á heild-
sölunum á sinni tíð, en sjálfstæðismenn kipptu sér ekki upp við það enda
sagði Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins 1. júní 2008:
„Það hafa komið fram traustar upplýsingar um tengsl sósíalista við
Sovétríkin, Austur-Þýzkaland og önnur ríki í Austur-Evrópu. En það mál
hefur aldrei verið hreinsað upp, hvorki að því er varðar pólitísk samskipti né
fjárhagsleg samskipti. … Úr því að Kjartan Ólafsson [fv. ritstjóri Þjóðviljans]
vill fá afsökunarbeiðni vegna símahlerana eigum við þá ekki öll, stríðsmenn
kalda stríðsins, að taka höndum saman og óska eftir því að öll gögn verði lögð
á borðið? … Það eru ekki margir Íslendingar lifandi, sem þekkja þessa sögu
vel. Einn þeirra, sem þekktu hana frá sjónarhóli vinstri manna, var Ingi R.
Helgason lögfræðingur, sem var áratugum saman í innsta kjarna Sósíalista-
flokksins, alveg eins og Kjartan Ólafsson. Síðustu árin, sem Ingi lifði, fóru
fram nokkur vináttusamleg samtöl á milli hans og ritstjóra Morgunblaðsins,