Tímarit Máls og menningar - 01.02.2018, Qupperneq 101
S a m s t æ ð s a k a m á l
TMM 2018 · 1 101
á Íslandi,“ svaraði hann rólega. En er það ekki svo, að hér sé framinn grúi
lagabrota, sem eru á almanna vitorði, en enginn hróflar við? Er ekki spill-
ingin í þjóðfélagi voru orðin almennt umtalsefni, án þess að rönd verði við
henni reist? Almenningsálitið er magnlaust, af því að lífsskoðun almennings
stefnir öll að vorkunnsemi. Yfir allt er breidd blæja, þar sem kærleikur kann
að vera uppistaðan, en kæruleysi er áreiðanlega ívafið.“
Bjarni Benediktsson, síðar forsætsráðherra, tók í sama streng. Hann
skrifaði Pétri bróður sínum í bréfi 1934:
„Bersýnilegt er, að þjóðlífið er sjúkt. Kemur það ekki einungis fram í svik-
unum sjálfum, heldur einnig því, að raunverulega „indignation“ er hvergi að
finna hjá ráðandi mönnum, persónuleg vild eða óvild og stjórnmálahags-
munir ráða öllu, á báða bóga, um hver afstaða er tekin. Slíkt fær ekki staðizt
til lengdar. Dagar linkindarinnar og svika samábyrgðarinnar hljóta að fara
að styttast.“
Nýir vitnisburðir bætast við. Guðni Th. Jóhannesson, nú forseti Íslands,
segir t.d. frá ólöglegum atkvæðakaupum í ævisögu sinni um Gunnar Thor-
oddsen forsætisráðherra.18 Margir kaupsýslumenn, nú síðast Sveinn R. Eyj-
ólfsson blaðaútgefandi, hafa sagt í bókum sínum frá yfirgangi og meintum
lögleysum af hálfu stjórnmálamanna og embættismanna allt fram á síðustu
ár.19 Hrunið 2008 opnaði augu margra þeirra sem áður höfðu kosið að hafa
þau lokuð. Panama-skjölin 2016 opnuðu enn fleiri augu upp á gátt. Það sem
ætti að vera horfin tíð er ennþá rammíslenzkur raunveruleiki.
V. Jafnræði fyrir lögum?
Sum mál fyrnast eða eru látin fyrnast líkt og gerðist í olíumálinu fyrir meira
en hálfri öld eða rannsókn þeirra misferst eins og t.d. í málverkafölsunarmál-
inu.20 Frekar en að reyna að berja í brestina er Alþingi sjálft hluti vandans.
Það kom berlega í ljós þegar þingið samþykkti í desember 2012 að láta fara
fram rannsókn á einkavæðingu bankanna 1998–2003 en lét síðan ekki af
slíkri rannsókn verða. Vanræksla Alþingis er bagaleg vegna gruns um lögbrot
við einkavæðinguna og einnig vegna gruns um að bankarnir hafi stundað
fjárböðun fyrir Rússa.21
Alþingi bað um aðgang að símtali seðlabankastjóra og forsætisráðherra 6.
október 2008 þar sem þeir ræddu lánveitingu bankans til Kaupþings. Seðla-
bankinn færðist undan en afhenti gögnin sérstökum saksóknara og þaðan
virtust þau leka í Kastljós RÚV 2016.22 Ekki er vitað hvort sá gagnaleki var
rannsakaður. Kjarninn höfðaði mál gegn Seðlabankanum 2017 og krafðist
aðgangs að gögnunum og þá birtir Morgunblaðið skyndilega gögnin, bersýni-
lega stolin, eins og ekkert sé sjálfsagðara. Vænta má að yfirvöldin séu að rann-
saka gagnastuldinn úr Seðlabankanum nema þau séu þeim mun uppteknari
við að taka skýrslur af blaðamönnum Stundarinnar sem birtu upplýsingar