Tímarit Máls og menningar - 01.02.2018, Page 103
S a m s t æ ð s a k a m á l
TMM 2018 · 1 103
VI. Hleranir og brottkast
Ég kalla það játningu þegar höfundur Reykjavíkurbréfs Morgunblaðsins
skrifar um símahleranir eins og tilgreint var í III. kafla. Meintar ólöglegar
símahleranir hafa aldrei verið gerðar upp þrátt fyrir marga vitnisburði um
þær.27 Menn hafa skýlt sér á bak við lögboðna þagnarskyldu þótt hún eigi
aðeins við um löglegar hleranir skv. dómsúrskurði. Engum ber skylda til að
þegja um ólöglegar hleranir, öðru nær.
Þór Whitehead lýsir svo atburðum frá 1976 (bls. 83): „Sigurjón Sigurðs-
son [lögreglustjóri, innskot mitt, ÞG] sótti um starf hæstaréttardómara og
taldi sig fá vilyrði fyrir því embætti. Um leið taldi hann tíma til kominn að
farga mestum hluta af því skjalasafni, sem lögreglan hafði komið sér upp um
kommúnista. Bjarki Elíasson segir, að Sigurjón hafi … ekki viljað láta eftir-
manni sínum eftir þessa arfleifð … Ekki er heldur að efa, að Sigurjón hefur
viljað forðast að vitnaðist um safnið eftir að hann var sestur í hæstarétt …
Trúnaðarmaður Sigurjóns flutti því megnið af safninu, þ. á m. spjaldskrár,
upp í sumarbústað sinn í nágrenni Reykjavíkur og brenndi gögnin til ösku
í götóttri olíutunnu. Af varð „mikill reykur“, eins og haft var við orð í þeim
fámenna hópi, sem vissi um þessa brennu.“28
Annað dæmi er brottkast úr fiskiskipum. Margir sjómenn hafa áratugum
saman lýst fyrir mér og öðrum miklu brottkasti. Yfirvöldin hafa þrætt fyrir
brottkastið og kallað það smámuni, einnig þær stofnanir ríkisins sem ber
skv. lögum að fylgjast með framfylgd laga um fiskveiðistjórn, laga sem banna
brottkast. Nú loksins hafa starfsmenn Fiskistofu stigið fram og lýst ástandinu
hreinskilnislega fyrir fréttamanni RÚV og leyft honum að birta myndir af
brottkasti.29 Starfsmennirnir vitna um bitlaust eftirlit og einnig um stórfelld
brotamál sem hafa verið felld niður. Og þá rifjast upp mál mannsins sem
fékk dóm fyrir brottkast sem hann sviðsetti til að hægt væri að birta myndir
af því í sjónvarpinu til að vekja athygli á vandanum.30 Eitt helzta einkenni
mafíuríkja er að þar eru þeir sem segja frá brotunum teknir frekar en þeir
sem fremja brotin.
VII. Umboðssvik, innherjasvik
Eitt dæmi enn varðar umboðssvik eða innherjasvik. Ráðuneytisstjóri fjár-
málaráðuneytisins fékk fangelsisdóm fyrir innherjasvik, þ.e. fyrir að forða
fé sínu úr banka á grundvelli innherjaupplýsinga. Eigi að síður hefur ákæru-
valdið látið ýmis önnur hliðstæð mál afskiptalaus. Guðmundur Gunnarsson
rafvirki og fv. stjórnlagaráðsmaður lýsti málinu nýlega í Stundinni 27. nóv-
ember 2017:31
„… ríkisstjórninni og stjórn Seðlabankans var orðið ljóst að bankarnir
myndu falla og ríkisstjórninni var eindregið ráðlagt að ganga í þessi mál áður
en bankarnir myndu opna á mánudagsmorgun. Í gagnaleka sem birtist síðar