Tímarit Máls og menningar - 01.02.2018, Qupperneq 105
S a m s t æ ð s a k a m á l
TMM 2018 · 1 105
hefur Alþingi ekki lagalegt boðvald yfir lögreglu eða saksóknurum. Slík
skipun rannsóknarnefndar eða ályktun eða einfaldlega bréf frá þinginu til
lögreglu og saksóknara eins og lýst var í II. kafla myndi eigi að síður senda
skýr skilaboð til réttra yfirvalda. Og það gætu áskoranir af hálfu almennings
einnig gert.
Hæstiréttur er óragur við umboðssvik. Um helmingur þeirra 35 einstaklinga
sem Hæstiréttur hefur til þessa dæmt í samtals 88 ára fangelsi fyrir brot í
tengslum við hrunið fékk dóm fyrir umboðssvik meðal annars.35 Þessi 88 ár
skiptast þannig milli stofnana: Kaupþing 32 ár, Glitnir 19 ár, Landsbankinn
11 ár, sparisjóðir 12 ár og aðrir 14 ár. Fjöldi ákærðra fyrir brot í tengslum
við hrunið er 71, en þar eð sumir voru ákærðir oftar en einu sinni er fjöldi
ákærðra einstaklinga án tvítalningar nokkru minni eða 53. Hæstiréttur hefur
til þessa fjallað um mál 52 einstaklinga og fundið 41 sekan (79%) en sýknað
11 (21%).36 Þar eð sumir voru fundnir sekir eða sýknaðir oftar en einu sinni
er fjöldi dæmdra einstaklinga fyrir brot í tengslum við hrunið 35 eins og að
framan greinir og fjöldi sýknaðra 10.
IX. „Vel tengdur glæpalýður“
Eftir hrunið 2008 varð fljótlega ljóst að þv. ríkisstjórn vildi ekki að erlendir
aðilar kæmu að rannsókn málsins. Ég lagði það til í ræðu minni á borgara-
fundi í Háskólabíói 24. nóvember þá um haustið að óvilhallir útlendingar
yrðu hafðir með í ráðum við rannsóknina og aftur í einkasamtali við ráð-
herra. Ég varð þess áskynja að við þetta var ekki komandi.37 Ég var ekki einn
um þessar áhyggjur. Jónas Kristjánsson ritstjóri skrifaði tæpu ári síðar, 28.
september 2009, undir yfirskriftinni „Vel tengdur glæpalýður“:38
„Erlendir ráðamenn efast um, að Ísland geri upp sakirnar við glæpalýðinn,
sem rústaði fjárhag og áliti landsins. Gera ráð fyrir, að sannleiksnefndin
fræga stundi kattarþvott. Taka eftir, að enginn glæpamaður hefur verið settur
inn, ekki einu sinni yfirmenn IceSave og Landsbankans. Ísland er talið vera
eins konar mafíuríki, þar sem vel tengdur glæpalýður sleppur billega frá ofur-
syndum sínum. Samt er Sjálfstæðisflokkurinn ekki lengur formlega við völd.
En hann ræður enn embættum og dómstólum og lögreglu og skilanefndum
og sannleiksnefnd. Pólitíkin er máttvana, jafnvel þótt hér sé vinstri stjórn.“
Jóhann Hauksson tekur í sama streng í bók sinni Þræðir valdsins 2011.39
X. Erlend skrif um Ísland
Bakgrunnur þessara áhyggna Jónasar Kristjánssonar og margra annarra var
m.a. fréttaflutningur erlendra fjölmiðla um Ísland, en landið hafði fram að
hruni ekki verið í alfaraleið heimspressunnar. Hrunárið 2008 brá svo við
að Financial Times í London birti 250 greinar um Ísland, Globe and Mail í
Torontó birti 170 greinar, Guardian sem var áður kennt við Manchester og