Tímarit Máls og menningar - 01.02.2018, Side 106
Þ o r va l d u r G y l fa s o n
106 TMM 2018 · 1
er nú heimsblað 130, Le Monde í París 110 og New York Times 75.40 Erlendir
fjölmiðlar41 (og innlendir!)42 fjölluðu m.a. um grunsemdir um að íslenzkir
bankar hefðu stundað fjárböðun fyrir rússnesku mafíuna43 og um tilraun
þv. ríkisstjórnar og Seðlabankans til að komast hjá að þiggja aðstoð Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins með því að taka heldur risalán hjá Pútín Rússlandsfor-
seta.44 Grunsemdirnar eru enn á sveimi m.a. vegna þess að Ísland kann
að koma við sögu í rannsókn bandaríska saksóknarans Roberts Mueller á
tengslum Trumps forseta og manna hans við Rússa, þ. á m. dæmda menn
og mafíósa.45
Þetta er samt ekki allt. Fyrir liggur að miklu fé var mokað út úr bönkunum
í miðju hruni,46 bæði mánudaginn 6. október 2008 eins og leknu gögnin
sem Stundin birti frá Glitni vitna um og lögbann var lagt á fyrir nokkru47
og jafnvel einnig þriðjudaginn 7. október eins og Robert Wade og Sigurbjörg
Sigurgeirsdóttir hafa lýst. Þau skrifa [mín þýðing, ÞG]:48
„Meðan krónan var í frjálsu falli, gjaldeyrisforðinn var á þrotum og engar
hömlur öftruðu útstreymi fjármagns, var gengið fest í fáeinar klukkustundir;
þetta var e.t.v. stytzta fastgengisskeið sem sögur fara af. En það var nógu langt
til þess að vel tengdir innherjar gátu fært fé sitt úr krónum yfir í gjaldeyri
á miklu hagstæðara gengi en þeim myndi bjóðast síðar. Heimildir innan
bankanna herma að milljarðar hafi flúið krónuna þessar klukkustundir. …
Síðan var krónan sett á flot – og hún sökk eins og steinn.“
XI. Virðing Alþingis
Ótti við hvítþvott af hálfu Rannsóknarnefndar Alþingis reyndist ekki réttur.
Nefndin skilaði góðu verki á heildina litið. Hitt er þó rétt að RNA tók á
hvorugu málinu sem lýst er hér að framan, hvorki meintri fjárböðun fyrir
Rússa né meintum mokstri fjár vel tengdra manna út úr bönkunum og út úr
landinu í miðju hruni, þ.m.t. lán Seðlabankans til Kaupþings, meðan venju-
legt fólk sat eftir með sárt ennið og sumir misstu aleiguna.
Yfirvöldin hafa haft nægan tíma til að rannsaka þessa atburðarás, en þau
hafa kosið að leiða hana hjá sér. Tilfinnanlegust er e.t.v. vanræksla Alþingis
sem samþykkti í desember 2012 að láta fara fram rannsókn á einkavæðingu
bankanna en ekkert bólar þó enn á slíkri rannsókn.
Svo vant sem Alþingi er að virðingu sinni getur það varla talið sæma að
fagna 100 ára afmæli fullveldisins 1. desember 2018 með lúðraþyt og söng
eftir að hafa látið fyrningarfrest meintra innherja- og umboðssvika í hruninu
líða hjá sjö vikum fyrr vitandi vits – og stolið nýju stjórnarskránni í þokka-
bót.49
Rifjast nú upp fyrir mér spurningin sem einn helzti listamaður þjóðar-
innar beindi til mín við kvöldverðarborð í heimahúsi: Datt ykkur ekki í hug
að bjóða þeim að halda þýfinu í skiptum fyrir nýju stjórnarskrána? Ekki mitt
að bjóða, svaraði ég.