Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2018, Page 132

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2018, Page 132
U m s a g n i r u m b æ k u r 132 TMM 2018 · 1 þegar honum finnst hann beittur rang- indum. Helgi dansaði í The Robert Joffrey Ballet í nokkur ár, fór með honum um Bandaríkin þver og endilöng og í sínar fyrstu heimsreisur sem hann segir afar skemmtilega frá. Flokkurinn var í Kiev í Úkraínu eftir vel heppnaða sýningarferð um Sovétríkin þegar John F. Kennedy var skotinn, forsetinn sem þau höfðu setið veislu hjá og dansað fyrir aðeins fáeinum vikum áður. Það er gott dæmi um hvernig veraldarsagan kemur við sögu Helga Tómassonar. Flokkurinn skipti um nafn 1964, hét eftir það The Harkness Ballet eftir aðalstyrktaraðila hans. Með í flokknum var Marlene Rizzo, gullfalleg bandarísk stúlka af ítölskum ættum, sem Helgi féll fyrir í fyrsta skipti sem hann leit hana augum og í desember þetta ár giftu þau sig. Ein af hliðarsögunum sem rjúfa tímaásinn segir stuttlega frá þeirra farsæla hjóna- bandi og hvernig þau komust að sam- komulagi um skiptingu skylduverka milli heimilis og atvinnu. Ein skemmtilegasta frásögnin í bók- inni er af þátttöku Helga í Alþjóðlegu ballettkeppninni í Moskvu árið 1969. Sú kemur heldur betur við þjóðarstoltið í manni. Helgi keppti fyrir Bandaríkin en lenti í vandræðum vegna þess að vega- bréfið hans var íslenskt. Ólíkt okkar tímum var Ísland eiginlega ekki til í heiminum á þessum árum og ekki höfðu umsjónarmenn keppninnar mikla trú á þessum pilti frá engulandi: „Þá var eins og við manninn mælt, upp í mér blossaði þrjóskan, ég skyldi sýna þessum helvítis karli að ég gæti dansað!“ Svo fór að Helgi vann silfrið. Gullið hlaut ungur maður sem líka átti framtíðina fyrir sér, Míkhaíl Baryshníkov, sex árum yngri en Helgi. Við þennan sigur komst los á Helga og hann sagði samningi sínum lausum við Harknessballettinn án þess að hafa nokkuð öruggt í hendi. Kannski hefur hann alltaf treyst gæfu sinni – enda hefur hún reynst honum trygg. Hann fær umsvifalaust tvö tilboð og annað þeirra frá sjálfum George Balanchine hjá New York City Ballet. Í því húsi starfaði hann í fimmtán ár frá sumrinu 1970, öll þau ár sem hann átti eftir sem dansari. Hann hætti meðan hann var enn virtur og dáður, hann þekkti sín takmörk, hafði horft á aðra dansa of lengi og vissi hvenær var komið nóg. Hann gat vel hugsað sér að kenna en til þess kom ekki. Nú fékk hann tilboð um starf listræns stjórnanda Konunglega danska ballettsins en það freistaði hans ekki. Að kvöldi 27. janúar 1985, þegar hann dansaði sinn síðasta dans hjá New York City Ballet, voru tveir menn úr stjórn San Francisco Ballet Company í salnum og gerðu honum tilboð sem hann hafnaði ekki. Árin í San Francisco voru ekki ein- tómur dans á rósum því þar mætti hann megnari andúð og afbrýðisemi en nokk- urn tíma áður, svo megnri að heilsa hans var í hættu um skeið. Það er sann- arlega lærdómsríkur lestur og áhrifaríkt að fylgjast með því hvernig hann vinnur sig upp úr þeim fúla pytti. Þar tók hann við ballettflokki í meðallagi en kom honum á undraskömmum tíma í fremstu röð. Aðferð sinni lýsir hann af þeirri nákvæmni sem einkennir allan textann og ég giska á að við eigum skrá- setjara, Þorvaldi Kristinssyni, að þakka. Það er galdur að spyrja spurninga og halda áfram að spyrja þangað til full- nægjandi svör hafa fengist, því sá sem hefur lifað viðburðina hefur alltaf til- hneigingu til að skauta hraðar yfir en kröfuharður lesandi vill. Það eina sem mér þykir vanta í þennan lokahluta eru fleiri myndir úr ballettsýningum Helga, til dæmis af rómuðum búningum Jens-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.