Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Síða 35
S k á l d a ð í a U ð n i n a
35
það. Félagsfræðingurinn Kari Marie Norgaard hefur hins vegar sett fram
hugmyndina um „samfélagslega sprottna afneitun“ (e. socially organized
denial) til að skýra tregðuna til aðgerða.
Norgaard telur að fólk búi almennt yfir vitneskjunni um loftslagsvandann,
en á óhlutbundinn hátt – hún er ótengd hversdagslegri tilveru þess hvort sem
er á persónulega sviðinu, hinu pólitíska eða félagslega.6 Flókin ferli fara af
stað þegar við meðtökum truflandi upplýsingar. Loftslagsvandinn vekur upp
óþægilegar tilfinningar (ótta, sektarkennd og vanmáttartilfinningu), gerir
kröfu um að samfélagsleg viðmið séu endurskoðuð og gerir okkur erfitt að
viðhalda jákvæðum hugmyndum um okkur sjálf og samfélagið.7
Þau sálrænu áhrif sem hér hefur verið tæpt á undirstrika mikilvægi
skáldverka á borð við loftslagskvartett Maju Lunde. Áhrifin sem loftslags
breytingar munu hafa, gætu haft og hafa nú þegar á líf á jörðinni eru víð
feðm, yfirþyrmandi, illviðráðanleg. Það hefur reynst okkur auðvelt að bæla
vitneskjuna um breytingarnar, afneita henni og hugsa um eitthvað annað.
Loftslagsbókmenntir geta gert okkur kleift að hugleiða veruleika sem er
margslunginn og uppfullur af óvissu, þær geta hrint af stað tilfinningum
sem við kjósum helst að forðast. Engin ein bók getur náð utan um allt sem
við þurfum að hugsa um, fjórar duga líklega heldur ekki til, en þetta er góð
byrjun.
tilvísanir
1 Livia AlbeckRipka, „Is ClimateThemed Fiction All Too Real? We Asked the Experts“, The
New York Times, 26. september, 2017.
2 Sjá „Fylkesmannen snur – gir likevel grønt lys for uthenting av isbiter fra Svartisen“, NRK, 22.
febrúar 2019: https://www.nrk.no/nordland/fylkesmannensnur_girlikevelgrontlysfor
uthentingavisbiterfrasvartisen1.14441472.
3 Veturinn 2006–2007 tilkynntu býflugnabændur í NorðurAmeríku um dauða allt frá 30–90%
býflugnabúa sinna. Sjá vefsíðu United States Environmental Protection Agency (EPA): https://
www.epa.gov/pollinatorprotection/colonycollapsedisorder.
4 Sjá vefsíðu verkefnisins Climate Refugees: http://www.climaterefugees.org/why
5 E. Ann Kaplan, Climate Trauma: Forseeing the Future in Dystopian Film and Fiction (Rutgers
University Press, 2016), bls. 2.
6 Kari Marie Norgaard, „Cognitive and Behavioral Challenges in Responding to Climate
Change“, Background Paper to the 2010 World Development Report, bls. 15.
7 Norgaard, bls. 31–32.