Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Side 57

Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Side 57
a F B r a g ð a n n a r r a k v e n n a 57 Ég er alltaf að horfa á konur, enda kona sjálf. En sagan sem birtist okkur í fornritum er skrifuð af karlmönnum um karlmenn fyrir karlmenn. Konur eru til hliðar og birtast aðeins til að egna karlmenn eða svíkja þá. Dyggðirnar og skyldurnar eru karlmannlegar, hefnd, vopnaburður. Ég vil hins vegar reyna að ná utan um það líf sem konurnar lifðu.18 Og það gerir Vilborg með því að leggja áherslu á þrennt. Í fyrsta lagi lýsir hún ítarlega fjölbreyttri vinnu kvenna, svo sem matseld, vefnaði og umönnun barna, svo fátt eitt sé talið. Í öðru lagi lýsir hún á áhrifaríkan hátt hinu líkamlega hlutskipti kvenna, þeirra hlutverk er fyrst og fremst að fæða af sér börn, helst syni sem geta viðhaldið því ofbeldisfulla feðraveldi sem þær lifa og hrærast í. Þá er líkami kvenna oft vettvangur ofbeldis og Vilborg lýsir afleiðingum nauðgana og annars líkamlegs ofbeldis og hikar ekki við að láta blóðið renna; tíðablóð, blóðlát í kjölfar fæðingar eða ofbeldis. Í þriðja lagi lýsir Vilborg á næman hátt tilfinningalífi kvenpersóna sinna. Lesandinn fær glögga innsýn í hversu ofurseldar valdi karlmanna konurnar eru, sem og ofbeldið og kúgunina sem þær verða að láta yfir sig ganga. Hér er notuð aðferð hins alvitra höfundar sem sér inn í hug allra persóna og sjónarhornið færist gjarnan á milli persóna, kvenna og barna – og reyndar karla líka, ef því er að skipta. Þjóðfræðiþekking Vilborgar kemur bæði fram í lýsingum á ytri gerð sam­ félagsins sem og hinum innri hugmyndaheimi heiðninnar, þar sem hjátrú og forneskja er ríkjandi. Vandlegar lýsingar eru á húsbúnaði og háttum, sem og ýmsum siðum og athöfnum, svo sem brúðkaupum, blótum og greftrunum. Sérstök áhersla er á viðburði í lífi kvenna, eins og barnsfæðingar og brjósta­ gjöf. En allar slíkar lýsingar eru vandlega fléttaðar inn í sjálfan söguþráðinn svo upp teiknast breið og trúverðug mynd af heiðnu samfélagi á víkingaöld. Það er einnig augljóst að Vilborg þekkir vel til sögusviðsins hvað landa­ fræði og náttúru snertir. Mikið er um magnaðar náttúrulýsingar í bókunum þremur þar sem haf, klettar og fuglar eru í aðalhlutverki. Segja má að stíll höfundar rísi einna hæst í myndrænum náttúrulýsingum sem lifna auðveld­ lega fyrir hugskotssjónum lesenda. Þroskasaga sjálfstæðrar konu Í fyrstu bók þríleiksins leggur Vilborg grunn að persónulýsingu Auðar. Hún sýnir óvenju sterkan og sjálfstæðan persónuleika; er óstýrilát, „fer eins og henni sjálfri sýnist“ (7), er „sjálfráð og þrjóskufull“ (8), „flækist um alla eyju að geðþótta sínum“ (9) og veldur Yngveldi móður sinni áhyggjum. „Það er kominn tími til þess að þú áttir þig á því að þú ræður þér ekki sjálf, unga kona“ (71), segir móðir Auðar við hana þegar henni, einu sinni sem oftar, blöskrar þvermóðska og uppreisnargirni dóttur sinnar og skömmu síðar vandar faðir hennar um fyrir henni: „Það er ekki þitt að velja þér guð til átrúnaðar eins
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.