Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Page 58

Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Page 58
S o F F í a a U ð U r B i r g i S d ó t t i r 58 og þér líst sjálfri; dóttir lýtur föður sínum á meðan hún er ógefin og síðan manni sínum“ (124). En Auður neitar að lúta valdi karla og hefur, þegar þarna er komið sögu, þegar skírst til kristinnar trúar. En þótt hún sé kristin og hafni ýmsum siðum úr heiðni, eins og til að mynda að taka þátt í blótum, er hún engu að síður tengd sterkum böndum við heiðinn hugmyndaheim. Það má telja raunsætt bragð af hendi höfundar því vafalaust þarf dágóðan tíma til að aðlagast nýjum siðum og hugsunarhætti. Segja má að persónan standi með annan fótinn í kristnum hugmyndaheimi en hinn í þeim heiðna og sú staða helst í gegnum allan bókaflokkinn. Til að mynda verður Auði oft hugsað til örlaganornanna sem spinna sinn vef og véla um líf manna19 og aðrar slíkar tilvísanir til hins heiðna arfs eru mýmargar í allri frásögninni. Að sama skapi kemst Auður að sjálfsögðu ekki undan valdi karlmanna þótt hún sé sjálfstæð og fylgin sér. Hún hefur ekki val um hverjum hún giftist en með kænsku tekst henni að koma í veg fyrir að vera gift aftur að fyrsta hjóna­ bandinu loknu. Þá hafa sonardætur Auðar ekki meira frelsi í þeim efnum en hún sjálf og eftir lát föður þeirra ræður Auður í þeim efnum. Elstu dætur Þorsteins, Gróa og Ólöf, eru gefnar í hjónaband á leiðinni til Íslands, sú fyrr­ nefnda í Orkneyjum og hin síðarnefnda í Færeyjum. Eins og fram kemur í ritdómi Heimis Pálssonar um Auði er hefðbundin túlkun á þessu að „Auður hafi ætlað sér með því að gifta sonardætur sínar á strategískum stöðum að skapa Norður­Atlantshafs stórveldi.“20 Það er sem sagt gengið út frá því að – líkt og hjá karlmönnum – ráði hagsmunagæsla Auðar hér ferðinni, að hún sé að tryggja stöðu sína með því að ráðstafa sonardætrunum í hjónaband. Vil­ borg leysir þetta hins vegar með því að láta systurnar tvær vera samþykkar ráðahagnum og býr til tvær ástarsögur í stað nauðungargiftinga. Sú mynd sem dregin er upp af Auði í þann rúma aldarfjórðung sem bækurnar spanna er í flesta staði trúverðug og við sjáum persónuna þroskast í gegnum mismunandi kvenhlutverk sín, sem dóttir, móðir og amma. Hún er sterkur karakter og lætur ekki beygja sig og kannski mætti álykta að Vilborg sé helst til jákvæð í garð Auðar; auk þeirra mannkosta sem upp hafa verið taldir gerir Auður sjaldan mistök og er ætíð góðhjörtuð og ráðagóð. En fyrir því að Auður hafi verið „afbragð annarra kvenna“ hefur höfundur að sjálf­ sögðu ágætar heimildir. Samtal við samtímann Í dómi um þriðju skáldsögu Vilborgar, Eldfórnina (1997), skrifar Ragna Garðarsdóttir að sagan lýsi leit aðalpersónu bókarinnar, Katrínar, „að sama­ stað í yfirgengilegu karlasamfélagi“.21 Að breyttu breytanda má segja að sama gildi um þríleikinn um Auði djúpúðgu. Hvort Auður hafi fundið slíkan samastað á Íslandi á landnámsöld er spurning sem hér verður látið ósvarað. Hitt er víst að enn þurfa íslenskar konur að fást við yfirgengilegt karlasam­ félag á ýmsum sviðum. Þannig getur þríleikurinn um Auði átt í merkingar­
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.