Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Side 70
J ó n k a r l H e l g a S o n
70
af Leifi Eiríkssyni“.30 Var bandarískur myndhöggvari, Alexander Sterling
Calder, fenginn til að hanna líkneskið. Í rökstuðningi með þingsályktuninni
var vísað til þess að
fyrsti hvíti maðurinn sem steig fæti á ameríska jörð var innfæddur Íslendingur,
Leifur Eiríksson (sonur Eiríks rauða, Norðmanns sem numið hafði land á Íslandi),
snjall og óttalaus skipstjóri sem fylgdi föður sínum til Grænlands árið 985 og hélt
þaðan í ferð til Noregs og fann, þegar hann sneri aftur árið 1000, meginland Amer
íku, en sá viðburður markar upphaf ósvikinnar amerískrar sögu.31
Hér má greina bergmál skjátextans í lokasenu The Viking: „Og fyrsti hvíti
maðurinn steig fæti á land í nýja heiminum.“32
Ljóst er að ferðalag Leifs heppna Eiríkssonar frá munnmælum miðalda
manna yfir á hvíta tjaldið í Bandaríkjunum árið 1928 var bæði langt og
strangt. Þeir áfangastaðir ferðalagsins sem hér hafa komið til tals eru handrit
Eiríks sögu rauða og Grænlendinga sögu og skáldsagan The Thrall of Leif the
Lucky eftir Ottilie A. Liljencrantz. Í skáldsögunni er fjölda persóna og nýrra
viðburða aukið við mótsagnakenndan vitnisburð íslensku heimildanna og
ástinni blandað í spilið. Við gerð kvikmyndarinnar er söguþráðurinn ein
faldaður á nýjan leik og á köflum er honum líka umbylt með afdrifaríkum
hætti. Veigamesta breytingin felst í því að á meðan Leifur fornsagnanna og
skáldsögunnar kristnar norræna menn í Grænlandi stendur Leifur kvik
myndarinnar fyrir kristniboði meðal frumbyggja NorðurAmeríku.
Það er freistandi að líta svo á að síðasti áfangastaður Leifs á þessu ferðalagi
milli heimsálfa og miðlunarforma hafi verið Skólavörðuholtið í Reykjavík
þar sem höggmynd Calders af hinum víðförla víkingi var afhjúpuð árið
1932. Styttan stendur á stalli sem minnir á stefni skips; þar er að vísu engin
dreka trjóna en í góðu samræmi við þá mynd sem brugðið er upp í The Viking
er Leifur í knésíðum kufli með skikkju á öxlum. Með annarri hendi heldur
hann um exi en með hinni þrýstir hann litlum róðukrossi upp að brjóstinu.
Það eina sem upp á vantar er snúið yfirskeggið.
Greinin er byggð á hluta 6. kafla bókar minnar, Echoes of Valhalla (London 2017),
bls. 153–71.
tilvísanir
1 Erik the Viking Official Trailer (London, 1989), YouTube, https://www.youtube.com/watch?v=
Gdq8u9lTdlA.
2 Sama heimild.
3 Sama heimild.
4 Kevin J. Harty. „Who’s Savage Now?! – The Vikings in North America.” Í Kevin J. Harty
(ritstj.). The Vikings on Film: Essays on Depictions of the Nordic Middle Ages (Jefferson, NC,
2011), s. 107.
5 Sjá Richard W. Haines, Technicolor Movies: The History of Dye Transfer Printing (Jefferson,
NC, 2003).