Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Side 76
d av í ð H ö r g d a l S t e F á n S S o n
76
Globeverðlaun, tvær tilnefningar til Óskarsverðlauna auk ótal annarra
verðlauna stefndi í epísk tíðindi þegar fréttist að Denis Villeneuve hefði
verið fenginn til að leikstýra Blade Runner 2049, framhaldi hinnar goð
sagnakenndu Blade Runner frá árinu 1982, og að Villeneuve myndi vinna
sína fjórðu Hollywoodmynd með kjörtónskáldi sínu, Jóhanni Jóhannssyni.
Hver var líka betur til þess fallinn að spinna við tímamótatónlist Vangelis úr
Blade Runner en Jóhann, framsækið, áræðið og ungt tónskáld sem hafði nýtt
raftónlistaráhrifin frá Vangelis í eigin tónlist og var bæði yfirlýstur aðdáandi
og einlægur áhugamaður um scifikvikmyndir? Villeneuve, Vangelis, Blade
Runner, epík, framtíðin, scifi, mannvélar, stór örlög, Jóhann Jóhannsson.
Þetta var kokteill sem gat ekki klikkað.
Og samt klikkaði allt. Skömmu fyrir frumsýningu myndarinnar var til
kynnt að tónlist Jóhanns væri ekki að finna í myndinni heldur hefðu tón
skáldin Hans Zimmer og Benjamin Wallfisch verið fengnir til verksins. Þetta
vakti mikla athygli og furðu, til að byrja með voru svör fá og óljós, en að
lokum lét Villeneuve hafa eftir sér að á lokasprettinum hefði hann viljað færa
sig nær upprunalegri tónlist Vangelis.
Málið var og er allt hið undarlegasta og fréttir hermdu að Jóhanni væri
samkvæmt samningi ekki heimilt að tjá sig um málið. Eftir stendur epísk
stórmynd sem varð betri en flestir þorðu að vona, með tónlist sem stenst allar
gæðakröfur en í samanburði við upprunalega tónlist Vangelis er sköpunar
verk Zimmers og Wallfisch þó harla rislítið. Vangelis leyfir syntaheiminum
að leika algert og afgerandi aðalhlutverk á meðan tónlistin í Blade Runner
2049 liggur miklu meira í bakgrunninum, með einstaka syntarisi.
Eftir standa líka margar spurningar: Hvers vegna náðu Jóhann og Ville
neuve ekki að leysa málið, eftir að hafa unnið saman að þremur myndum í
góðu bræðralagi? Varð rannsakandi andi Jóhanns of djúpsigldur fyrir Ville
neuve; fór hann of langt frá þeim kjarna sem Villeneuve vildi styðjast við?
Studdust Zimmer og Wallfisch að einhverju leyti við tónlist Jóhanns? Að
hve miklu leyti? Hvernig hljómaði tónlist Jóhanns við Blade Runner 2049?
Munum við einhvern tímann fá að heyra hana eða er hún að eilífu bundin í
þagnarákvæði og lagaflækjur?
ár þagnarinnar
Fyrir Jóhann Jóhannsson varð árið 2017 því sannkallað ár þagnarinnar.
Samhliða því að vinna í Blade Runner 2049 skrifaði hann tónlist fyrir annað
gríðarspennandi verkefni, kvikmyndina Mother! eftir Darren Aronofsky
með Jennifer Lawrence og Javier Bardem í aðalhlutverkum. Eftir öflugan feril
við jaðarmyndir (Pi, Requiem For a Dream, The Wrestler, Black Swan) hafði
Aronofsky leikstýrt Russell Crowe í stórmyndinni Noah árið 2014 en hún
olli vonbrigðum, bæði í miðasölu og gæðum. Því var nýrrar myndar beðið
með mikilli eftirvæntingu, ekki síst vegna leikaravalsins, en það þótti sæta