Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Side 93

Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Side 93
o r ð U m m y n d l i S t 93 við veröldina. Hið fyrra kallaði hann praktískan skilning og hið seinna fjar- lægan fræðilegan skilning. Þessar tvær upplifanir á því að vera í heiminum afhjúpa það hvernig við erum í heiminum og hvaða verkfæri, aðferðir og kerfi við notumst við til þess. Það er mikilvægt að taka fram að það sem Heidegger kallaði verkfæri er allt frá fjölskylduformi, trúarbrögðum, menntun, tungumáli o.s.frv. Verkfærin liggja reiðubúin til notkunar og vegna þess hversu aðgengileg þau eru geta þau auðveldlega tekið yfir eðli hugsunar okkar og tungumáls. Í samhengi við undirskilda þekkingu og praktískan skilning á verunni í heiminum er vert að skoða hvernig Heidegger lagði áherslu á sambandið milli praktískra verkfæra og heimsins. Hamar öðlast aðeins merkingu í gegnum notkun. Hin undirskilda þekking liggur í aðgerðinni; í því að nota verkfærið. Þekkingin verður til í praktískri aðgerð. Meðvitundin um notkunina á verk­ færinu er einhvers konar sjálfskilningur samofinn verklegri aðgerð. reynsla listamannsins Þegar listamaður eða handverksmaður vinnur í efni mætti lýsa því sem sam­ tali á milli tveggja fyrirbæra sem hvort tveggja býr yfir ákveðnum mögu­ leikum sem og takmörkum. Í þessu „hljóða“ samtali fyrirfinnst auðmýkt hjá listamanninum eða handverksmanninum þar sem hann getur ekki þvingað efnið til að haga sér á hvaða hátt sem er. Hann þarf að læra að hlusta á „tungu­ mál“ efnisins og stilla sig af í takt við það. Þannig mætti jafnvel segja að efnið tali í gegnum listamanninn. Í bókinni Berger on Drawing eftir listfræðinginn John Berger er að finna ágætt dæmi um þetta. Berger lýsir því nákvæmlega hvaða uppgötvanir hann gerir og hvaða áskorunum hann mætir í teikniferlinu. Ég fór að skynja hvítan flöt teiknipappírsins á nýjan hátt. Nú upplifði ég þennan hreina flöt sem autt rými. Þetta tæra og bjarta rými varð fyrir mér einhvers konar svæði endalausra möguleika […] Á meðan ég virti fyrir mér fyrirsætuna upplifði ég svo sterkt hvernig hann væri úr föstu efni, að hann tæki pláss í rýminu, að hann væri stærri en summa tugþúsunda hugmynda um hann. […] Þá, frekar skyndilega, náði teikningin ákveðnum hápunkti sem er líka ákveðið kreppuástand. Það er að segja að það sem ég hafði teiknað fór að vekja athygli mína jafn mikið og það sem ég átti eftir að uppgötva.Í teikniferlinu kemur alltaf að ákveðnu stigi þar sem það ræðst hvort teikningin heppnist eða ekki. Á þessu stigi fer teiknarinn nefnilega að teikna út frá kröfum og þörfum teikningarinnar, því sem hann er þegar búinn að teikna. Ef það sem hann hefur sett niður á örkina er að einhverju leyti rétt þá mun það sem hann á enn eftir að uppgötva kallast á við raunverulega skoðun. Ef teikningin er í grund­ vallaratriðum röng mun það sem bætist við verða framlenging af rangri skoðun. (Berger, John 2008: 5–8) Dæmið sem hér er tekið er af klassískri módelteikningu en sams konar hljóða samræðu gæti listamaður átt andspænis því að tjá valdbeitingu í frauðplast,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.