Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Page 99

Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Page 99
m o r g U n n á kó n g S H ó l m i 99 landi árið 1700 átti hann hvorki afturkvæmt til föðurlands síns né fjölskyldu og andaðist í fangavist í Rússlandi sextán árum síðar. Við brottför hans féll það þess vegna í hlut konu hans að sjá um eignir hans heima, sinna setrinu á Kóngshólmi auk annarra jarðeigna þeirra og ljúka gerð trjágarðsins. Það gerði hún með þeim myndarbrag að aldrei varð hann stærri og fegurri en í hennar tíð og sonar þeirra hjóna, Carls Fredriks Piper, en honum fékk hún garðinn fyrst til umráða og loks eignar hálfum öðrum áratug síðar. Úr ætt­ inni gekk hann síðan 1757 eftir dramatíska atburði sem gerðust í tíð afkom­ enda Carls Fredriks. Frá þeim tíma gekk á ýmsu um garðinn. Hirðulausir eigendur gerðu hann sér að féþúfu og seldu þaðan allt sem þeir gátu, svo að hann lenti í niður­ níðslu, en á síðari hluta átjándu aldar eignaðist Amarant­frímúrarareglan staðinn og 1807 Arla Coldinu­reglan. Oft hefur legið við borð að krumla eyðileggingarinnar sópaði burt síðustu minjunum um Hortus Piperianus, og á sjöunda áratug síðustu aldar munaði minnstu að honum yrði fórnað fyrir bílastæði. Svo heillavænlega tókst þó til að 1997 var vörn snúið í sókn, svo að nú býður garðurinn þeim sem hann skoða eða eiga leið hjá kyrrláta hvíldar­ stund frá dunandi umferðarþunganum og ber þeim kveðju og andblæ liðins tíma og menningar. iv Kona kom út á pall nálægt hliðinu, framan við húsið sem veit að garðinum og kennt er við Piperska muren. Hún stóð þar um stund og reykti. Svo fleygði hún stubbnum í átt að steinkeri með sandi rétt við tröppurnar um leið og hún fór inn aftur og skellti á eftir sér. Stubburinn hafnaði rétt hjá Venusi frá Vorarlberg sem leiðsögumaður minn kynnti mig fyrir og kúrði þarna skorðuð í kverkinni við vegginn. Þangað var hún komin alla leið frá Austur­ ríki, svo dvergsmá að lítið bar á henni, með sinn mikla kvið og stóru brjóst sem röskuðu öllum algengustu líkamshlutföllum, en kváðu eiga að vísa til lífs og frjósemi. „Svona fleygir fólk frá sér ruslinu út um allt,“ sagði viðmælandi minn, „og rænir svo stundum afleggjurum, jafnvel af sjaldgæfum tegundum úr jurtaríkinu sem áttu að fá að vaxa hér í friði, en sífellt þarf að verja fyrir ágangi. Það er iðulega eins og fólk taki varla eftir þessum reit, það gengur bara hugsunarlaust framhjá eða skoðar hann sljóum augum rétt í svip og flýtir sér svo burt. Fæstir una sér lengi eða spyrja um nokkuð. Þegar fólk sér mann í vinnufötum, eins og mig, gengur það bara þegjandi framhjá, en upplitið breytist kannski ef það kemur fyrir að ég er með grænu svuntuna mína. Á henni stendur Bergianska trädgården og það þykir fínt! Þá kinkar það kannski kolli eða býður góðan dag.“ Hann var í hollvinasamtökum þess garðs og átti þess vegna svuntuna, en í þessum reit á Kóngshólmi naut sín vel í verki ástríða hans og hugsjón um að fegra og bæta heiminn.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.