Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Page 110

Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Page 110
H U g v e k J U r 110 Auður Jónsdóttir Allar sögurnar á Bókmenntahátíð Jæja, þá byrjar Bókmenntahátíð í Reykjavík eina ferðina enn! Við heyrum talað um hana og skynjum þýðingu hennar hvert á sinn hátt; sumir hafa slysast inn á stakan viðburð, aðrir aldrei drifið sig á viðburð undir hennar nafni, einhverjir hafa stundað hana af krafti, jafnvel tekið þátt í henni eða átt hlut í að halda hana, og upplifa hana jafnvel eins og lifandi veru. Að vissu leyti er hún lifandi vera. Bókmenntahátíð er hugtak utan um líf og fjölbreytileika, tilfinningar, pólitík, átök, fagurfræði, samtöl, ást og hatur – og sögur. Á tveggja ára fresti hossast hingað í flugvélum heimsfrægir rithöfundar og líka aðrir minna frægir sem ekki er síður fengur að. Í hverri manneskju býr heill heimur og flestir þessara gesta reynast búa yfir auðugum heimi sem þeir eru fúsir að miðla af.  kattakonurnar og paul auster Sumir gestir eru frægari en aðrir, svo frægir að það er nánast eins og frægðar­ ára þeirra leggist yfir borgina meðan á stuttri dvöl þeirra stendur. Þeir sem upplifa sína poppara í rithöfundum finna fyrir því í hverri taug í þrjá sólar­ hringa eða svo að Paul Auster eða Marg­ aret Atwood séu á vappi um Laugaveg­ inn og Lækjartorg eins og hvert annað hvunndagsfólk.  Heimsfrægir höfundar eru eins og rokkstjörnur að því leyti að umhverfið tekur breytingum í návist þeirra. Þegar Paul Auster var hér í bæ um árið heyrði maður fólk hvískra um það úti á götum, hann þurfti ekki einu sinni að sjást til að tilfinningin væri áþreifanleg.  En það er kannski ekkert skrýtið. Rit­ höfundur á kalíberi við hann hefur fyrir svo löngu síðan skapað sér sess í hugum svo margra og haft áhrif á svo marga á svo margvíslegan hátt. Mótað sýn fólks á bókmenntir, aðferðir og skilning. Svo þegar hann kemur loksins á staðinn þá býr hann þegar í meðvitund svo margra. En þeir eru líka til sem opna loksins bók eftir hann þegar þeir sjá tilstandið í kringum hann og uppgötva nýjan heim. Og fleiri, alla þessa heima sem búa í gestum Bókmenntahátíðar.  Svo verða til skemmtilegar sögur, sögur sem hátíðin sjálf og gestir hennar fæða af sér. Ég hef stundum sagt söguna af því þegar hin frægu hjón, Paul Auster og Siri Hustvedt, voru hér og veislugest­ ir hátíðarkvöldverðar hátíðarinnar end­ uðu í heimahúsi hér í bæ. Ég var á leið­ inni til Kaupmannahafnar þá um nótt­ ina, þar sem ég bjó, og hafði fengið lán­ aða íbúð mömmu meðan ég dvaldi hér, þannig að eftir kvöldverðinn fór ég beint þangað að þrífa, nokkuð sem ég hafði ekki komist í vegna líflegra viðburða hátíðarinnar. Þegar ég var búin datt vin­ kona mín inn og vildi ólm að ég kíkti í partíið áður en ég færi í f lugvélina. Við förum því þangað og um stund leið mér eins og ég gæti verið inni í skáldsögu eftir Braga Ólafsson – sem hefur jú þýtt Auster og orðið fyrir áhrifum af honum.  Í fallegri stofunni sátu hin frægu rit­ höfundahjón í litlum sófa og við fætur þeirra var falleg hvít motta. Þau virtust h u g v e k j u r
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.