Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Side 113

Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Side 113
H U g v e k J U r 113 hússins eða uppi í risinu í Iðnó og býður alla velkomna, himinlifandi með lista­ verkið Bókmenntahátíð sem hann átti svo ríkan þátt í að skapa í hugarheimi sínum sem voru engin takmörk sett. Þar sem voru engin landamæri, ekki frekar en á hátíðinni sjálfri.  Bókmenntahátíð tengir okkur á svo dýrmætan hátt við umheiminn og þungavigtarmálefni í alþjóðlegri umræðu. Fagurfræði jafnt sem mann­ réttindi. Já, við fáum innsýn í meira en skáldskap, við hlustum á fólk sem talar og skrifar um stríðsátök, náttúruvá, trú­ arbrögð, veruleika í fjarlægum heimsálf­ um, menningarátök, margbrotið mann­ lífið. Bókmenntahátíð býður okkur inn í samtal við hugmyndir og hræringar – beint í æð.  Nú man ég eftir atviki þegar áður­ nefndur Paul Auster var sestur niður í Norræna húsinu, í þá mund að byrja að tala þegar heyrðist mikill hvinur.  Eru þetta herþotur? hváði hann. Þá var ólga í loftinu út af innrásinni í Írak og að heyra þessa lágstemmdu amerísku rödd spyrja að þessu í undrunartóni ljáði herþotunum ennþá dýpri merk­ ingu. Atvikinu sem slíku. Það varð saga. Þetta voru jú herþotur sem höfðu fengið leyfi til að fljúga þarna yfir hausamót­ unum á okkur í Norræna húsinu.  Atvikið ein af öllum þessum upplif­ unum. Bókmenntahátíð er upplifun. Ný í hvert skipti, samt alltaf sama veran. Full af sögum, fólki og pælingum. Með því að fara á Bókmenntahátíð og taka þátt erum við að stíga inn í sögu og verða hluti af henni. Við sköpum hana – og skáldum með veru okkar. Þessa sögu utan um allar sögurnar. Og það er ekki leiðinleg saga! Álfrún Gunnlaugsdóttir Örfá orð um konuheitið Mekkín Unga konan sagði við prestinn að hún ætlaði að láta dóttur sína heita Mekkín. Hann varð undrandi og spurði hvers vegna hún vildi gefa barninu þetta furðulega nafn. Hún svaraði og sagði að húsmóðir hennar í Alsír hefði heitið þessu nafni og sú kona hefði verið sér svo góð. Presturinn lét það gott heita og skírði telpuna Mekkín. „Og þannig komst nafnið í ættina.“ Móðir mín var að útskýra fyrir mér, á unglingsárum mínum, hvers vegna langalangamma mín hét Mekkín, og einnig systir hennar ömmu, sem drukknaði ung. Og fleiri konur í ætt­ inni hétu þessu nafni. Ungu konunni, formóður okkar, hefði verið rænt í Tyrkjaráninu 1627, í Borgarfirði eystra, og var ein af þeim fáu Íslendingum sem Danakonungur greiddi lausnargjald fyrir. Mér þótti sagan falleg, einkum þótti mér mikið til hjartagæsku konunnar í Alsír koma. Seinna hreif mig einnig trygglyndi stúlkunnar við þá manneskju sem hafði reynst henni svo vel í þreng­ ingum hennar, að hún vildi að nafn hennar hljómaði í sínum húsum. Ef til vill óskaði hún sér einnig þess að dóttir hennar eignaðist eitthvað af eiginleikum góðu konunnar í Alsír. Enn síðar hreifst ég af víðsýni sveitaprestsins íslenska sem ekki setti fyrir sig að nafnið væri ættað frá landi þar sem Múhameðstrú var ríkjandi. Hann vissi að unga konan hefði dvalið meðal Múhameðstrúar­ manna fyrir ekki svo löngu, og var til þess að gera nýkomin úr sjálfu „barbarí­ inu.“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.