Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Qupperneq 143
Höfundar efnis
Auður Jónsdóttir f. 1973. Rithöfundur og blaðamaður. Nýjasta bók hennar er Þján-
ingarfrelsið: Óreiða hugsjóna og hagsmuna í heimi fjölmiðla (2018, ásamt Stein
unni Stefánsdóttur og Báru Huld Beck).
Álfrún Gunnlaugsdóttir, f. 1938. Rithöfundur og prófessor emerita við Háskóla
Íslands. Nýjasta bók hennar er Fórnarleikar (2016).
Árni Bergmann, f. 1935. Rithöfundur og þýðandi. Nýjasta verk hans er endurminn
ingabókin Eitt á ég samt (2015).
Árni Óskarsson, f. 1954. Þýðandi og prófarkalesari. Nýjasta þýdda skáldverk hans er
Ég er að spá í að slútta þessu eftir Iain Reid.
Ásdís Ingólfsdóttir, f. 1958. Framhaldsskólakennari, þýðandi og rithöfundur. Nýjustu
bækur hennar eru Ódauðleg brjóst (2018) og Eftirskjálftar (2018).
Björn Halldórsson, f. 1983. Rithöfundur, þýðandi og blaðamaður. Nýjasta verk hans
er smásagnasafnið Smáglæpir (2017).
Brynja Hjálmsdóttir, f. 1992. Skáld og kvikmyndagagnrýnandi. Nýjustu verk hennar
eru Blóðmenn, útvarpseinþáttungur fluttur í Útvarpsleikhúsinu (2017) og textar í
bókinni Hljóð bók (2018).
Davíð Hörgdal Stefánsson, f. 1973. Rithöfundur. Nýjasta bók hans er Hlýtt og satt:
átján sögur af lífi og lygum (2014).
Einar Már Jónsson, f. 1942. Sagnfræðingur. Nýjasta bók hans er Örlagaborgin: brota-
brot úr afrekasögu frjálshyggjunnar (2012).
Einar Kárason, f. 1955. Rithöfundur. Nýjasta bók hans er Stormfuglar (2018).
Erna Erlingsdóttir, f. 1975. Íslenskufræðingur, starfsmaður óbyggðanefndar o.fl.
Gréta Sigríður Einarsdóttir, f. 1989. Bókmenntafræðingur og ritstjóri Iceland Review.
Guðmundur Andri Thorsson, f. 1957. Rithöfundur og alþingismaður. Nýjasta bók
hans er Hæg breytileg átt (2016).
Guðrún Baldvinsdóttir, f. 1990. Bókmenntafræðingur og verkefnastjóri á Borgar
bókasafninu. Hún hefur birt grein í Ritinu, tímariti Hugvísindasviðs og gagnrýnt
bækur og leikrit fyrir Víðsjá á Rás 1.
Guðrún Elsa Bragadóttir, f. 1986. Doktorsnemi í almennri bókmenntafræði við
SUNY at Buffalo. Hún starfar við kennslu í kvikmyndum og bókmenntum við
Tækniskólann í Reykjavík og Háskóla Íslands.
Hjörtur Pálsson, f. 1941. Íslenskufræðingur og skáld. Nýjasta bók hans er Ljóðasafn
(2016).
Jón Karl Helgason, f. 1965. Bókmenntafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands.
Nýjasta bók hans er Echoes of Valhalla: the afterlife of the Eddas and Sagas (2017).
Kari Ósk Grétudóttir Ege, f. 1981. Myndlistarmaður, rithöfundur og kennari. Nýjustu
verk hennar eru Hvirfill/Swirl í Týsgallerí 2015 og Karma fyrir fugla, leikrit unnið í
samstarfi við Kristínu Eiríksdóttur (2013).
Kristín Guðrún Jónsdóttir f. 1958. Dósent í spænsku við Háskóla Íslands. Hún fæst
einnig við þýðingar, einkum smásögur og örsögur. Nýjasta þýðing hennar er
Heimar mætast: Smásögur frá Mexíkó (2016).
Lily King, f. 1963. Bandarískur rithöfundur og háskólakennari.
Maríanna Clara Lúthersdóttir, f. 1977. Leikkona og bókmenntafræðingur.
Robert Louis Stevensson, 1850–1894. Skoskur rithöfundur og tónlistarmaður. Meðal
verka hans er Fjársjóðseyjan (Treasure Island, 1883) sem kom út í nýrri íslenskri
þýðingu Árna Óskarssonar 2016.