Ófeigur - 15.07.1947, Blaðsíða 8

Ófeigur - 15.07.1947, Blaðsíða 8
8 ÓFEIGUR vildu starfa í hans anda. Keyptu þeir hálft Laxnes og byggðu þar fyrirmyndarfjós fyrir 50 kýr. Átti að fram- leiða barnamjólk og jafnvel blanda hana með fjörefn- um. Mjólkin átti að bera af allri samskonar vöru, enda seld dýrt. Rómuðu dagblöð höfuðstaðarins þessa fram- kvæmd. Þótti líta vel út, að nú mundu rætast skálda- draumar Kiljans um verksmiðjumjólk, þar sem sveita- menn kæmu ekki nærri. Hins vegar varð f járhagur bús- ins brátt erfiður. Skuldheimtumenn gerðust nærgöngul- ir og auglýstu kröfur sínar í Lögbirtingi. Góð ráð voru nú dýr. Hlutafélagsfjósið var strandað, en næst lá að reyna bæjarrekstur, enda var það aðaltillaga Laxness. Skyldi nú bjóða blaðamönnum úr Reykjavík, svo að þeir gætu túlkað málið fyrir bæjarbúum. Starfsliðið í Lax- nesi var nú búið í hvíta hjúpa, iíkt og læknar og hjúkr- unarkonur nota í góðum sjúkrahúsum. Kýrnar voru þvegnar og burstaðar, svo að þær gljáðu, eins og vel hirtur tilhaldsbíll. Blaðamennirnir komu fullir eftirvænt- ingar á þann stað, þar sem Laxnes hafði fengið skáld- þroska sinn og þar sem reist hafði verið hið gullna hlið þjóðnýtingar hvítrar vöru. Horfðu þeir með andagt á allt, sem þeim var sýnt, enda rituðu þeir síðan með mik- illi hrifningu um fyrirtækið. Sérstaklega vakti það undr- un þeirra, að svo virtist, sem kýrnar hefðu mannsvit og gætu brynnt sér sjálfar, líkt og þegar útfarinn róni í Hafnarstræti opnar 70 kr. svartadauðaflösku úr áfengis- verzluninni og slekkur þorstann. Nokkrar skörulegar Morgunblaðskonur lásu með hrifningu ummæli blaða- mannanna. Höfðu þær lengi haft illan bifur á samsölu- mjólkinni og þótti nú hilla undir nýjan dag í þeim mál- um. Var vitað í bænum, að læknarnir höfðu boðið borg- arstjóra allt búið til kaups og útlit var fyrir, að bæði Sjálfstæðismenn og kommúnistar í bæjarstjórn myndu staðráðnir í að taka boðinu. Þegarfréttisttilkomufrúnna að Laxnesi, sló ótta á fólk staðarins. Kýrnar höfðu ekki verið þvegnar og ekki burstaðar. Starfsliðið var í venju- legum klæðum verkamanna, sem vinna líkamleg störf. Forstöðumaðurinn gaf þá út skipun um, að allt fólkið skyldi fara í blaðamannasloppana. Þeir höfðu nú fyrir rás viðburðanna fengið margháttaða bletti og flekki, en öðru var ekki til að dreifa. Mjög þótti frúnum öðruvísi um að litast, heldur en þær höfðu búizt við. Var allur viðurgerningur, húsbúnaður og umgengni líkast og í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ófeigur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.