Ófeigur - 15.07.1947, Side 53
ÓFEIGUR
53
tæma vasa efnamanna í bænum. Ásgeir Ásgeirsson bað
Búkollu griðahjá Alþýðuflokknum um leið og hann lagði
af stað til að bjarga alhexminum í New York. Vara-
maður Pálma rektors, Sigurjón Guðmundsson sat hjá.
Mun hafa orðið að hlýða „vorúða“-fólki, til þess að allir
bæjarstjórnarmenn væru í sömu syndinni. Óánægj-
an í bænum, með þessi málalok, er jafn almenn eins
og samheldnin í bæjarstjórninni. Getur svo farið að Bú-
kolla verði nokkurs valdandi um nýja niðurröðun hinna
pólitísku spila, þegar gefið er í næsta skipti.
# # #
Þrír fyrrverandi forsætisráðherrar fóru nú á alheims-
þingið: Ásgeir, Hermann og Ólafur. I fyrra máttu þessir
menn ekki fara. Ólafur varð þá að gæta vel að sínum
brothætta stól, en Hermann og Eysteinn voru, fyrir
hönd gistivina, að gera lokaboð í kommúnista. Nú eru
Ölafur og Hermann í orlofi og láta ráðherrana eina um
að bjarga föðurlandinu, með heimavarnarliðinu. Val
nefndarmanna vestur um haf er sögulega táknrænt. Frá
vordögum 1942 hafa Ólafur og Hermann verið þolin-
móðir biðlar austrænu dömunnar. Að sið grimmlyndra
kvenna hefur hún lagt fyrir þá margar þrautir, sem
erfitt var úr að leysa. En haustið 1944 náði Ólafur hinu
þráða takmarki. Átti hann það að miklu leyti Ásgeiri að
þakka, því að hann gekk vel fram við að koma Alþýðu-
flokknum í flatsæng með erfðaféndum kratanna. Verður
það þung raun fyrir Hermann að horfa, í Ameríku, á
hinn úlfgráa koll þess meðbiðils, sem stakk hann út,
þegar síst skyldi, og að sjá við hlið Ölafs, „aðjútand-
inn“ Ásgeir, sem sýnilegt tákn um sigur Kveldúlfs í
hinni örlagaríku glímu um að vera með þeim útlendu,
meðan stríðsgróðanum var ráðstafað.
* * #
Forráðamenn Búnaðarfélags Islands hafa að baki
rómantíska sögu varðandi orlofsaðstöðu bænda. Her-
mann bar, þeirra vegna, fram tillögu um að ríkið gæfi
hverju sveitaheimili 10 kr. svo að heimilisfólkið gæti
farið í skemmtiferðir. Þinginu þótti þetta gaman of
grátt og feldi tillöguna. Þá tóku gistivinirnir það ráð,
að skattleggja bændur sjálfa og skyldi Búnaðar félagið
ráðstafa fénu. Ekki vildu bæjarmenn una þessu og settu
sjóðinn undir ríkiseftirlit. Þótti mér þessi leikur með
sæmd sveitanna ófagur og átti þátt í að bændur fengu.