Ófeigur - 15.07.1947, Síða 30
30
ÓFEIGUR
Gömul og ný vegamót.
Á árunum 1938—39 vann ég að því að fá Alþýðu-
flokkinn, Framsókn og Sjálfstæðisflokkinn til að starfa
saman að stjórn landsins á borgaralegum grundvelli.
Þetta tókst. Þjóðstjórn fór með landsstjórnina í þrjú
ár. Kommúnistar voru alla þessa stund í vonlausu og
þýðingarlitlu andófi. Vorið 1942 hrikti í þjóðstjórninni
og lá brátt við slitum. I lok aprílmánaðar ritaði Sjálf-
stæðisflokkurinn Framsókn bréf og bauðst til að halda
áfram samstjórn, ef Hermann Jónasson hætti við það
áform, að knýja fram þingrof og nýjar kosningar þá
um vorið. Ef þessu yrði neitað, kváðust Sjálfstæðis-
menn fylgja fram stjórnarskrárbreytingu Alþýðuflokks-
ins, sem var líka studd af kommúnistum. Hermann
sinnti ekki þessu friðarboði. Hugðist, eftir kosningar um
haustið, geta myndað „vinstri" stjórn með báðum verk-
lýðsflokkunum. Framsóknarmenn voru margbundnir
heitum að vinna móti kommúnistum. Ég neitaði að vera
með í þessum svikum og stefnuhvörfum. Sá fyrir hinar
óhjákvæmilegu afleiðingar. Þær eru nú að koma fram.
Síðan 1942 hafa kommúnistar leikið á, og leikið með,
alla borgaraflokkana. Þeir hafa stjórnað landinu tví-
vegis með hinum bæjaflokkunum. 1 fyrra sinn steyptu
þeir landinu í hina ægilegustu dýrtíð. I síðara skiptið
tókst þeim að setja fast nálega 600 miljónir króna
svo landið er, nú þegar, fyrir þeirra stjórnaráhrif, ger-
samlega gjaldeyrislaust. Alla stund, síðan 1942, hafa
kommúnistar hænt Hermann að sér með fölskum vin-
mælum og heitum um að koma honum til æðstu valda
í vinstri stjórn. Þá buðu þeir að hjálpa Framsókn til
að klófesta stríðsgróða hinna nýríku og verja mestu af
fénu til að rækta landið. Hermann og Steingrímur búnað-
armálastjóri lofuðu síðan bændum í Flóanum, vorið
1944, 60 miljónum af þessum vinstri stjórnarfeng. Hins
vegar gerðu kommúnistar þá skilyrðislausu kröfu tii
Hermanns og Eysteins, að þeir skyldu útiloka stofnend-
ur Framsóknar, Tímans, Dags og aðalhjálparmenn Hall-
gríms Kristinssonar við eflingu Sambandsins á árunum
1916—22, frá öllum áhrifum í flokknum. Eysteinn, Páll
Zóphoníasson og Daníel Ágústínusson voru fengnir til