Ófeigur - 15.07.1947, Qupperneq 25
ÖFEIGUR
25
I öllum skólum ætti að hafa mikið verklegt nám, íþróttir,
skátaæfingar, heimalestur í sambandi við bókasöfn,
skólasjónleiki, æfingar í ræðumennsku og kurteisri
framkomu. Hin langa skólaseta, og nauðungarvinna við
bóknám, skapar námsþreytu og rótgróna óbeit á þeim
bókfræðum, sem hafa þýðingu fyrir andlegt líf í landinu.
Snorri Sturluson hefði ekki orðið mikill rithöfundur og
Matthías ekki stórskáld, ef þeir hefðu verið settir í
heimavistarskóla 7 ára að aldri og síðan þrælkaðir við
leiðinlegar námsbækur fram á þrítugsaldur. Vandi Is-
lendinga í uppeldismálum er að gera vinnuhættina frá
Odda, Haukadal og Hólum, á tíma Jóns Ögmundssonar,
að fyrirmynd í nútíma skólastarfi.
Háfjallaferðir.
Islendingar sækja nú mjög í þéttbýli, og meira heldur
en hóf er á. En samhliða þvi þrá þeir kynni við há-
fjöllin. Skíðamennskan í þéttbýlinu er einhver hollasti
þáttur í uppeldi æskumanna við sjávarsíðuna. Sumar-
húsin, sem Reykvíkingar reisa víða kringum bæinn,
sýna að höfuðstaðarbúar eru enn nátengdir sveitalífi, þó
að þeir hafi heimili sín í borginni. Víst má telja að sókn
bæjamanna til háfjallanna á sumrin sé ein hin hollasta
nýjung í þjóðlífinu. I háfjöllunum býr dularfull fegurð
og heilsusamlegur töframáttur. Skálagerð Ferðafélags-
ins upp til fjalla er einhver hin þarfasta framkvæmd.
Hefir félagið opnað marga fegurðarheima á landinu
sunnan og vestanverðu. Ungur Norðlendingur, Páll
Arason frá Þúfnavöllum, hefur orðið brautryðjandi í
norðlenzkum háfjallamálum. Páll er vaskur og þraut-
seigur bílstjóri, með háf jallaþrá í æðum. Hann átti, með
fleiri Eyfirðingum, þátt í að reyna að ryðja akveg úr
Eyjafirði fram til jökla, en sá vegur liggur of hátt
yfir sjó til að vera vel notfær. Þá fór Páll norður í
Bárðardal og fann, að vestan Skjálfandafljóts var hið
bezta akleiðarstæði úr byggð inn á Sprengisand. Þarf
þar ýtu við ruðning í nokkra daga. Liggur þá Sprengi-
sandur opinn fyrir innrás að norðan. Til að fullnota að-
stöðuna þarf að hafa fjallaskála með greiðasölu og
talstöð á sumrum í Jökuldal, og í Laugafelli við Hofs-
jökul norðanverðan. Koma má á sumarsambandi með
bifreiðum sunnan frá yfir Sprengisand, ef samþykkt
verður tillaga okkar Ingólfs Jónssonar, um að flytja