Ófeigur - 15.07.1947, Qupperneq 56
56
ÓFEIGUR
£á. Áróður Búnaðarfélagsins bar þann árangur, að á
Laugarvatnsfundinum var meiri hluti fyrir því að drepa
óháð bændasamtök. Var Guðmundur hrakinn frá fund-
arstjórn og sýnd megn ókurteisi. Þótti Jón í Deildar-
tungu kunna þar einna minnst mannasiðina. Bjarna
á Laugarvatni tókst að fá samkomuna til að samþykkja
að næsta vor skyldi, með leynilegri atkvæðagreiðslu,
borið undir bændastéttina, hvort hún vildi háð eða óháð
bændasamtök. En eftir Laugarvatnsfundinn voru sam-
tökin deild í Búnaðarfélaginu. Hin leynilega atkvæða-
greiðsla fór svo, að minnstu munaði að óháða stefnan
sigraði. Höfðu þó verið reynd flest áróðursmeðul til að
villa og svæfa bændur. Leiðtogar Búnaðarféiagsins sáu,
að hreyfingu óháðra bænda yrði ekki haldið niðri, nema
með lævísi. Var þess vegna kallaður saman bændafund-
ur á Hvanneyri í fyrra sumar og að forminu til ógilt
allt, sem Búnaðarfélagið hafði áður gert í málinu. Slepti
félagið að nafni til bændasamtökunum úr fjötrunum á
búnaðarþingi í vetur. En félagsstjórnin ákvað að nota
áróðurstækni sína til þess að halda bændasamtökun-
um í sömu aðstöðu og móðurlaust barn er hjá grályndri
stjúpu. Samt stendur valdaspekulöntum Búnaðarfélags-
ins stuggur af löngun bænda eftir frjálsum og gagn-
legum stéttarsamtökum. Þess vegna treystu þeir sér
ekki til að standa formlega móti því að Selfosshreyfing-
in hlyti viðurkenningu í persónu hins síunga bænda-
höfðingja á Hofi. Annars óttast valdamenn Búnaðar-
félagsins mest komandi krepputíma. Þegar þrengir að
bændunum, munu þeir sennilega ekki una til lengdar að
vera mállausir og varnarlausir undir hælum allra skipu-
lagðra stétta. En aðdragandinn að þakklætinu til Guð-
mundar á Hofi sýnir, að stjórn Búnaðarfélagsins er, að
því er stefnufestu snertir, á sama stigi og landflótta
harðstjóri í Danmörku, sem lét róa með sig 20 ferðir
sömu nóttina yfir Litlabelti, af því hann vissi ekki á
hvorum bakkanum hann ætti að lenda. Þetta ferðalag
Búnaðarfélagsins byrjaði með 8 milljóna gjöfinni, sem
tryggði þjóðinni Áka og Brynjólf í tvö ár og endar á
opinberu þakklæti forkólfa Búnaðarfélags Islands til
manns, sem hinir gjafmildu hafa ofsótt og afflutt, eftir
því sem orkan leyfði, undangengin þrjú ár.
# # #
Menn á svarta listanum eru nú mjög í uppsiglingu.