Ófeigur - 15.07.1947, Blaðsíða 52
.52
ÓFEIGUR
að leggja landið í þá fjötra, sem hann veit lítt hversu
ber að leysa.
Kommúnistar virðast líta á töluna 15 sem helgitákn.
Brynjólfur þóttist vilja reisa menntaskóla hjá Kleppi
fyrir 15 miilj. Eyddi ennfremur hálfri milij. króna fyrir
amerískar teikningar af útvarpshöll í Reykjavík og
skyldi hún líka kosta 15 miljónir. Þá gengu bolsevikar
á Akureyri fram fyrir skjöldu um hafnarmál bæjarins.
Vildu þeir gera höfn fyrir 15 milljónir norðan á Odd-
eyrartanga og létu gera af því mannvirki teikningar,
bak við Emil vitamálastjóra, því að þar bjuggust þeir
við ráðdeiid. Loks hefur Áki margfaldað hina heilögu
tölu með 3 í verksmiðjum sínum á Siglufirði og Skaga-
strönd. Þar er mjölskemman, lýsisgeymirinn og lítt hæfu
vélarnar, allt saman liðugar 45 milljónir kr.
# * *
Búkollu-læknarnir eru seigir. Menn héldu, að mál
þeirra væri steindautt en skyndilega komst það gegnum
bæjarstjórn, í dálítið blettóttum blaðamannasloppum.
Borgarstjóri mælti með að bærinn ábyrgðist 200 þús.
kr. lán til Laxneslæknanna, gegn því að fá 100 lítra á
dag af hinni frægu mjólk búsins. Kýrnar eru taldar vera
50. Er mikið haft við þessar kýr. Höfuðstaðurinn telur
hverja þeirra þess virði að Gunnar Thoroddsen skrifar
á 1000 kr. víxil fyrir hvern spena til að fá til umráða
daglega 2 lítra úr hverri kú af mjólk, sem er töluvert
dýrari en önnur mjólk í bænum. Bændur mega af þessu
sjá, að þeir eru mjög góðs maklegir fyrir þá miklu og
góðu mjólk, sem þeir selja Reykvíkingum daglega, án
yfirverðs, eða 4000 kr. baktryggingar fyrir hvern grip.
* # *
Sýnilegt er að tilgangurinn með þessu ábyrgðarflani
er að láta bæinn ganga að búinu, þegar vanskil aukast
og reka búið síðan á kostnað bæjarsjóðs. Ekki er vitað
um einn einasta bæjarbúa, utan bæjarstjórnar, sem
mælir með eða afsakar meðferð bæjarstjórnar á Búkollu.
Eru æsingarnar mestar í liði Mbl.manna og fær borgar-
stjóri margar hnútur sendar frá sínum samherjum.
Með leynifjötrum tókst að fá 12 atkv. með ábyrgðinni.
Hinir sátu hjá. Sjálfstæðismenn fylgdu borgarstjóra
nauðugir, en urðu að bjarga honum. Kommúnistar
voru rneð til að hjálpa Helga Guðmundssyni og til að