Ófeigur - 15.07.1947, Page 33
ÖFEIGUR
33
á Stokkseyri og flutt í bifreiðum handa nautpeningnum
í Kaldaðarnesi. Fáein önnur hrakfalladæmi lýsa
kommúnistum. Þeir vildu byggja yfir útvarpið fyrir
15 miljónir, menntaskóla hjá Kleppi fyrir aðrar 15 og
höfn norðan á Oddeyrartanga fyrir þriðju 15 miljón-
irnar. Alls staðar voru til glæsilegar teikningar af þess-
um stórvirkjum. Það má þakka Pétri Magnússyni að
hafa stungið þessum og fleiri nýsköpunarteikningum
undir stól á réttum tíma. Þar á meðal nafnfrægu leik-
fangi Eiríks Einarssonar, er sjö miljóna skóli átti að
rísa í bithaganum í Skálholti.
En hinn eftirsótti vinstri armur í vinstri stjórn, komm-
únistarnir, hefur opnað ríkissjóði fjögur ennþá stærri
sár en síldarbræðslurnar og flugvöllinn. Það eru launa-
lögin, skólalögin, tryggingarnar og ábyrgðin á fiskinum
frá í desember í vetur. Þessir fjórir þættir ábyrgðar-
lausrar f jársóunar munu gera ríkisgjaldþrot óhjákvæmi-
legt, ef ekki verða gerðar róttækar gagnráðstafanir á
næsta þingi. Við allar þessar framkvæmdir var forustan
í höndum hinna dýrmætu „vinstri manna“, verkalýðs-
forkólfanna, en milli þeirra er nokkur metingur um,
hver hafi komið til leiðar mestri óhamingju. Að setja
launalög, skólalög og almannatryggingar á þeim tíma
þegar stúlkur fengu 15 þúsund króna árslaun við fisk-
vinnu, loftskeytamenn 50 þúsund og skipstjórar yfir
100 þúsund króna laun, hefði verið eðlileg framkvæmd í
höndum sjúklinga í geðveikrahæli eða vistmanna Bryn-
jólfs í Kaldaðarnesi. Þó var sú gildra, sem Áki setti
fyrir útveginn, enn meiri háskagripur. Aðalútflutnings-
vara landsmanna hækkuð stórlega og ríkissjóður látinn
ganga í ábyrgð fyrir hámarkinu. Slíkt ráðlag er met, á
sinn hátt. Bak við þessa fáránlegu framkvæmd var upp-
boðshyggjan. Áki hafði gert hæsta boð strax. Sjálf-
stæðismenn, Kratar og Framsókn máttu ekki vera minni.
Þeir gengu inn í hæsta boð. Framsókn átti bágast, því
að allar hennar tillögur, landbúnaði í vil, voru hunds-
aðar við þessa atkvæðagreiðslu. En vegna tálvona um
nýja stjórn mátti ekki styggja kommúnista. Þess vegna
stakk bændaflokkur þingsins höfði líka í gildruna. Á
næsta þingi munu fulltrúar borgaraflokkanna sjá, hvað
þeir hafa misgert, er þeir létu Áka ginna sig til heimsku-
legasta ríkisrekstrar, sem er til, en það er þjóðarábyrgð
á einstaklingsframleiðslu.