Ófeigur - 15.07.1947, Qupperneq 28
28
ÖFEIGUR
jólfs og Einars með stuðningi frá Aðalbjörgu, Sigur-
bimi dósent og Einari Ólafi Sveinssyni, sem ætlar að
hræða Ólaf Thors og Bjarna Benediktsson, sem trúnað-
armenn landsins, frá að gera þjóðinni gagn og sæmd.
Ef íslenzkt lýðveldi á að geta blómgast, sem vestrænt
þingstjórnarríki, verður það að hafa svo öflugt lögreglu-
vald að útilokað sé, að nokkur tegund af skríl ráði, á.
sínum grundvelli, fram úr málum þjóðfélagsins. Eftir
að herferð sú, er ég hóf, á sínum tíma, gegn njósnara-
kerfi innlendra og útlendra landhelgisbrjóta, hafði bor-
ið þann árangur, að svikin voru sönnuð og meinsemdin
bætt með því að hindra að loftskeytastöðin væri notuð
til brotlegra dulmálssendinga, var af hálfu Framsókn-
armanna borið fram frumvarp um að gera alla skip-
verja á varðskipunum að lögreglumönnum ríkisins. Þá
voru þeir undir föstum aga, máttu ekki gera verkföll og
gátu starfað með lögreglunni í landi, þegar með þurfti.
Menn í Alþýðuflokknum risu gegn þessu frumvarpi. Ef
til vill gamall ótti frá tímum Jóns Magnússonar, en þó
öllu fremur minningar frá bernskuárum flokksins, þegar
sumar athafnir hans í kaupdeilum, voru ekki ætíð í sam-
ræmi við landslög. Frv. var svæft illu heilli og nú græða
andstæðingar Alþýðuflokksins mest á vanmætti ríkis-
valdsins. Næsta skrefið í lögreglumálunum á sjónum,
var stigið í fyrrasumar, þegar hraðbátarnir þrír voru
sendir úr landi af því, að meðan lögbrjótar vissu af
bátunum við ströndina, undir heiðarlegri stjórn, var
ómögulegt að eyðileggja landhelgina, hvorki með tog-
bátum eða togurum. Síðan þetta gerðist, hafa Finnur
Jónsson og Eysteinn Jónsson haft mörg útispjót til að
reyna að finna sæmileg gæzluskip í stað hraðbátanna.
En þeir finna ekkert, nema stórskip, sem sliga landið,
eða báta sem hafa ekki við sökudólgunum. Með sölu
hraðbátanna úr landi var alls konar lögbrjótum gefið
,,dömufrí“ í landhelginni. Þegar útlendir skipaeigendur
fréttu að búið væri að skila hraðbátunum, af þvi að ís-
lenzkir togbátar þyrftu að vera í landhelginni, brostu
þeir í kampinn, sem von var, og hugðu gott til glóðar-
innar.
Nú er komin borgaraleg stjórn. Dómsmálaráðherrann
er annar þeirra tveggja trúnaðarmanna þjóðfélagsins,
sem kommúnistar ætluðu í haust, sem leið, að kúga til
að gera landinu óbætanlega smán og tjón. Landhelgis-