Ófeigur - 15.07.1947, Blaðsíða 67
ÓFEIGUR
67
Stein Steinar, Ásmund og Halldór. Flokkslega skiptist
þessi skáldaauður þannig að Hermann hefur þrjú hirð-
skáld en Brynjólfur Stein Steinar.
# # *
Þegar þingið kom saman var kjör forseta fyrsta mál-
ið. Eftir stærð flokkanna átti Sjálfstæðisflokkurinn að
stýra sameinuðu þingi, Framsókn neðri deild og Kratar
efri málstofunni. Sjálfstæðismenn vildu endurkjósa Jón
á Akri, en Framsókn Jörund, þrautvanan og mjög nafn-
kunnan úr forsetastarfi fyrir glöggleik og réttdæmi.
Kratar ætluðu að kjósa Guðmund sýslumann í Hafnar-
firði, skarpan mann og úrskurðargóðan. En þetta fór
á annan veg. Barði Guðmundsson hafði verið forseti í
neðri deild í fyrra og var hans frammistaða með þeim
hætti, að hann mun hafa þótt standa einna lakast í
þeirri stöðu þeirra forseta, sem núlifandi menn muna
eftir. Kvað svo ramt að þessu, að kommúnistar sóttu
fast að honum fyrir vítaverða framkomu í forsetastól,
þó að Barði sé þeim fylgispakastur allra hálfkomma.
Þegar Barði vissi, að hann átti að víkja fyrir Jörundi,
kom á hann berserksgangur. Hótaði hann Krötum hvers-
konar ófamaði, ef hann nyti ekki flokksstuðnings þeirra.
Sjálfstæðismenn gerðu ráð fyrir að stuðningsmenn
stjórnarinnar stæðu saman um forsetakjör og sýndu í
því einhuga. En vegna væringa í blöðum, milli Jóns á
Akri og Halldórs sálmaskálds, létu Framsóknarmenn,
einkum Páll Z. og Bernharð falla stór orð um, að þeir
mundu aldrei sýna Jóni bónda nokkra hollustu. Þegar
Barði frétti þetta, biður hann Bernharð mág sinn að
bera olíu í þessar sundrungarglæður og verða sér þannig
að liði. Sjálfstæðismenn tilkynntu Framsókn, að þeir
skyldu kjósa Jörund, ef Framsókn kysi Jón. Reyndi
Eysteinn að bjarga samheldni stjórnarinnar og lítils-
háttar sæmd til handa flokknum með því að tryggja
kjör Jörundar. Pétur Ottesen vildi ekki kjósa Jón og
var þá auðgefið, að ekki kom að sök, þó að tveir Fram-
sóknarmenn hefðu farið aðra leið en flokkurinn. Barði
hafði eggjað Bernharð svo, að hann vildi engum sættum
taka. Er Bernharð þó hversdagsgæfur svo að mikla
brýningu hefur þurft til að leiða hóglátan mann út í
þessa villu. Fórst Eysteini forustan svo hörmulega, að
hann spilaði sæmd og gagni frá Framsókn og stjórninni.
Skiluðu Eysteinn og hans sveit auðu, en Jón náði samt