Ófeigur - 15.07.1947, Page 10

Ófeigur - 15.07.1947, Page 10
10 ÓFEIGUR ólíkt, því að Akureyrarskólinn dró stærri fisk frá borði. Mismunandi starfsaðferðir rektoranna gerðu gæfumun- inn. Annar rektorinn trúir á „vorúðann" eins og Her- mann og missti marksins. Hinn rektorinn trúir á mátt- sinn og megin og flutti heim mikinn hlut í vertíðar- lok. Báðir menntaskólarnir fengu á þingi í fyrra hálfa milljón í hlut til nýbygginga. Sigurður Guðmundsson lét teikna stórhýsi, þrjár hæðir og kjallara, á fögrum stað á hinni víðáttumiklu lóð skólans. Skyldu þar vera heima- vistir fyrir 150 nemendur, íbúðir fyrir nokkra ógifta kennara, eldhús og borðstofa fyrir alla heimavistina, bókasafn, lestrarstofa og náttúrugripasafn. Skólameist- ara tókst með mikilli elju og áhuga að gera nálega þriðj- ung þessa stórhýsis fokheldan í fyrrasumar. Pálma rektor farnaðist miður. Hann trúði fagurgala kommún- ista. Þóttist Brynjólfur vilja flytja skólann á hólana vestan við Klepp og reisa þar skýjaborg fyrir 15 milljón- ir króna. Notaði Brynjólfur meginhluta fenginnar fjár- veitingar í fyrra til að kaupa erfðafesturéttindi með ónýtum húsaskriflum innan við bæ. Síðan sendi Bryn- jólfur rektor og einn af yngri húsameisturum landsins í ferð til sjö landa að leita eftir beztu fyrirmyndum. En þegar heim kom hafði bæjarráð Reykjavíkur, sem var hinn raunverulegi handhafi eignaréttinda landsins hjá Kleppi, afhent landið undir ailsherjar útgerðarstöð í bænum. Menntaskólinn sat nú eftir með erfðafesturétt- inn og kofana svífandi í loftinu. Brynjólfur vildi ganga af skólanum dauðum og lét nú leita að nýjum eyðistað. Var þá um stund ákveðið, að 15 milljóna höllin skyldi vera tekin niður úr hinum loftkenndu hæðum hjá Kleppi og sett niður utan við byggðina á Öskjuhlíð. En þegar hér var komið sögu, var Brynjólfur kominn úr valda- stólnum, og við skólaslit í vor lýsti rektor yfir, að senni- lega yrði menntaskólinn enn um stund að bíða lítt búinn að húsum í þrengslum og ryklofti á gamla staðnum. X. Skólameistari á Akureyri hafði ekki setið aðgerðar- laus, meðan þessu fór fram. Honum hafði þótt það furðuleg tíðindi, þegar einn æstasti þjónn austrænna hugsjóna var settur yfir öll menntamál landsins. Hafði skólameistari haldið nemendum sínum með mikilli rögg- semi frá öllum opinberum baráttuaðgerðum í anda

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.