Ófeigur - 15.07.1947, Side 14

Ófeigur - 15.07.1947, Side 14
14 ÓFEIGUR arfinn. Frá bæjardyrum Sigurðar Guðmundssonar ligg- ur einn vegur, gata skólans. Pálmi á um að velja marga vegi og hann hikar á hverjum vegamótum. Sveita- mennskan, „vorúðinn", náttúruvísindin, uppeldi æsku- manna, ritstörf, félagsmál, samkvæmislíf og ræðu- mennska eru þjóðgötur Pálma. Hann kemur víða við og leggur stein í vegg. En í byggingar- og framamál- um skólans hefur hann ekki beitt nema litlu af orku sinni. Þar hefur hann látið hillingar Brynjólfs og „vor- úða“ Hermanns villa sér sýn. En þó að hinar marg- þættu gáfur Pálma Hannessonar hafi ekki orðið bygg- ingarmálum skólans til framdráttar, er ánægjulegt til þess að vita, að enn er til við forstöðu stærsta skóla landsins maður, sem er fulltrúi þeirrar víðfaðma menn- ingar, sem hefur verið happ og hrós þjóðarinnar í þúsund ár. Mætti ætlast til, að gamlir nemendur skólans taki nú höndum saman og rétti með framsýni og dómgreind hlut skólans, svo að hann verði ekki miður búinn heldur eni stallbróðirinn norðlenzki. Að minnsta kosti ætti ekki oftar að koma fyrir, að umræður hef jist um, að mennta- skólahúsið, með þingsal Jóns Sigurðssonar, verði af- hent til frálags eins og afsláttarhross, en sá leikur hófst í valdatíð Brynjólfs og virðist tæplega lokið enn. XIII. Samvinnan var áður fjöllesnasta og fjölkeyptasta tímarit á íslandi. Sambandsstjórn segist hafa í huga að tvöfalda stærð upplagsins. Mun gert ráð fyrir, að kaup- félögin kaupi meira og minna af aukningunni til út- býtingar meðal félagsmanna, sem ekki hafa keypt ritið. Þessu fylgja bæði kostir og ókostir. Án efa bætast við kaupendur með þessum hætti. En það er reynsla með prentað mál, sem útbýtt er gefins, að menn telja það sér lítt viðkomandi og stinga því undir sperrukverkina. Þá er jafnan nokkur erfiðleiki fyrir blöð og tímarit, sem ekki starfa á fjárhagsgrundvelli, að sætta hina raunverulegu kaupendur við, að þeir séu látnir borga það, sem aðrir fá með vildarkjörum. Þá er enn sá ann- marki á því að ýta prentuðu máli að fólki, sem ekki kærir sig um það, að þá safnast slíkt lesmál fyrir, og það orð kemst á, að blaðið eða tímaritið sé ekki lesið af nærri öllum, sem fá það. Að sjálfsögðu má vænta þess, að sambandsstjórn gæti þess að beita hinni nýju

x

Ófeigur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.