Ófeigur - 15.07.1947, Page 18

Ófeigur - 15.07.1947, Page 18
18 ÖFEIGUR Nýir vegir. Áfengismálin. Þau eru hættuleg en við þau er kákað með allsherjar viðvanigsbrag. Ef tekið væri á vínmálinu með alvöru, mætti halda áfengisbölinu í skefjum eins og berklum. Ef hver sá maður, sem lætur sjá sig á almannafæri undir áhrifum áfengis, vissi að hann tapaði áliti fyrir veikleika sinn, myndi mikið af áfengisbölinu hverfa. Það fólk sem hefur mest áhrif á almenningsálitið getur gert mest gagn í þessu efni. Merkur læknir hefur lagt til að stofnað verði félag í þessu skyni. Það væri hvorki bann- eða bindindisfélag en það segði fyrir um, hvað leyfilegt væri þeim mönnum, sem á annað borð vilja hafa vín um hönd og þó teljast vel siðaðir. Islendingar geta ekki haldið sessi meðal menningarþjóða heimsins, ef þeir leyfa sér að liggja í rennusteinunum, bæði hér á landi og erlendis. Ekki eru nema nokkrir mánuðir síðan nafn- kenndur íslendingur fór utan, í nafni vísindalegrar fræðimennsku, komst til Danmerkur, lagðist þar í of- drykkju og komst aldrei til þess lands, sem för hans var heitið til. Ríkið borgar þessa vísindaferð. Geta má sér til, hvers konar álit íslenzka þjóðin fær af slíkum utanferðum sinna trúnaðarmanna. Islenzkar konur hafa samþykkt öflug mótmæli gegn ofdrykkju. Hafa þær til þess ríkulegar ástæður. Mæð- ur, systur, unnustur og eiginkonur hafa fellt mörg van- máttug tár yfir drukknum vandamönnum, en hér vantar djarfmannlegt starf, en ekki ályktanir. Ef íslenzkar kon- ur vilja stöðva ofdrykkju, þá mun það takast. En til þess þarf dirfsku, sem lítið bólar á bæði hjá konum og körl- um. Konur þurfa að neita að dansa við eða samneyta á heimilum mönnum, sem eru undir áhrifum víns. Þær verða að hjálpa til að koma á í landinu þeirri trú, að hver ölvaður maður eigi að sæta nokkurri refsingu í álitsmissi fyrir drykkjuskap og ef hann ræður ekki við áfengislöngun sína, verði að líta á hann sem sjúkling þjóðfélagsins. Islenzkar konur eiga áfenginu svo grátt að gjalda að kalla má að þær berjist hér í nauðvörn. Að vetrinum eru oft í höfuðstaðnum margar dans- skemmtanir samtímis, þar sem tugir ungmenna, stund-

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.