Ófeigur - 15.07.1947, Side 21

Ófeigur - 15.07.1947, Side 21
ÓFEIGUR 21 ósk, er hún umkringd örvum spottsins. Það er létt að segja við slíka tillögukonu, að hún gæti auðveldlega útvegað sér frúarheitið með því að ná sér í eigin- mann. Konur eru, sem von er til, lítt fúsar til að leggja einkalíf sitt undir almannadóm á þingum. Þess vegna þegja margar stúlkur um sitt réttleysi í þessu efni, en kvíða því þó, að geta ekki fengið bréf, blað eða útsvars- reikning án þess að finna ör stefnt að sínu einkalífi, með særandi flokkun eftir stétt, efnum eða manngildi. Hér eiga karlmenn að koma til hjálpar með nokkrum ridd- araskap. Þeir eiga að forða þúsundum ágætra íslenzkra kvenna frá óverðskuldaðri móðgun, ótal sinnum ár hvert. Hér þarf ekki að inna af höndum erfiða fórn, ekki annað en að veita ölium íslenzkum konum, við öll viðeigandi tækifæri, veglegasta ávarpstitilinn sem efna- og tilhaldskonur hafa fram á síðustu ár talið vera sér- eign þeirra. Langsamlega mestur hluti íslenzkra kvenna er vel kominn að því réttlæti, að ekki sé með ávarps- heitinu verið að hnýsast í einkamál þeirra eða flokka þær eftir atvinnu eða efnurn. Meirihluti þingmanna virtist vilja unna konum þessarar réttarbótar. Má vænta, að þegar málið hefur verið skýrt nokkru nánar, muni margfaldur meirihluti karlmanna utan þings sýna kon- um í þessu efni sem öðrum þá virðingu, sem þær eiga skilið. Hálft íandið í voða. Gífurlegir óþurrkar hafa herjað hálft landið. Rign- ingar, oft með ofsaslagviðri, hafa lamið slegið og óslegið gras ofan í jörðina viku eftir viku. Margir bændur verða að fækka stórlega búpeningi sínum. Mjólkin hlýt- ur að verða bæði lítil og kostarýr. Mjög hlýtur að verða erfitt að bjarga þeim bústofni, sem eftir lifir, jafnvel með þeim takmarkaða fóðurbæti, sem völ verður á í haust. í öllum þessum ófarnaði er ekki vitað, að bændur hafi haldið svo mikið sem einn einasta fund, til að ræða vandamál sitt. Ekki hefur heldur orðið vart við, að Búnaðarfélag fslands hafi rumskað. Hvort tveggja er skiljanlegt. Bændur á íslandi hafa ekki með sér neinn al- mennan, frjálsan, menningar og hagsmunafélagsskap. Kaupfélögin eru blönduð mönnum úr öllum stéttum. Oft er helmingur manna í kaupfélagi úr sveit, en hinn helmingurinn úr bæjum og sjóþorpum. Búnaðarfélag

x

Ófeigur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.