Ófeigur - 15.07.1947, Blaðsíða 26

Ófeigur - 15.07.1947, Blaðsíða 26
26 ÓFEIGUR brúna af Þjórsá, þegar sú brú verður endurnýjuð inn- an skamms, að Tungná og spenna hana þar yfir. Þá geta Sunnlendingar og Norðlendingar notið sameigin- lega þeirra dásemda, sem háfjöllin búa yfir. Páll Ara- son vinnur að því að gera aðra norðlenzka ferðamanna- leið færa og vinsæla. Fer hann þá með ferðamannahópa úr Mývatnssveit, austur að Jökulsá, þaðan að Herðu- breið. Síðan vestur sandana norðan við Vatnajökul að Dyngjuf jöllum og Öskju en síðan að Svartárkoti í Bárð- ardal. Enn hefur Páll hug á að opna sumarleið ferða- manna frá Möðrudal, suður og austur með jöklinum að Eiríksstöðum á Jökuldal. Hefur Páll Arason með for- göngu í bifreiðaferðum um öræfin, orðið hinn þarfasti maður, við að koma bæjafólki í kynni við fegurð háf jall- anna. Fiskimið íslendinga. Allmiklar umræður hafa nýverið orðið um stækkun landhelginnar og friðun Faxaflóa. Hvort tveggja er nauðsynlegt en lítil alvara fylgir. Árni fiskifræðingur fer land úr landi á friðarfundi, stundum með tvo að- stoðarmenn. Hve langt er þar að takmarkinu má sjá á því, að Árni virðist gera kröfur til annarra þjóða um bætur til íslendinga fyrir það að láta vera að taka þátt í að eyðileggja fiskirækt í Faxaflóa. Má nærri geta hve langt verður þar til að aðrar fiskiþjóðir vilja gera tvennt í senn: Hætta sjálfar rányrkju í Faxaflóa og borga Is- lendingum fyrir að drepa ekki þann fiskstofn, sem aðrir hlífa. Friðun Faxaflóa og víkkun landhelginnar eru stór- mál, en þau eru einskisvirði fyrir framtíðar afkomu landsmanna, nema þeir hætti sjálfir tvennskonar skemmdarverkum: Felli algerlega niður dragnótaveiði í landhelgi og lögleiði algert bann gegn því að bátar hafi útbúnað til togveiða. Norðmenn leyfa fáum togurum að eiga heima í landinu og banna togbáta. Forráða- menn norsku þjóðarinnar ætla að fiskveiðar skuli á ókomnum öldum vera blómleg atvinnugrein fyrir þjóð- ina. Hér virðist vera stefnt að því að eyðileggja fiski- miðin á fáum árum. Vill þjóðin hætta skemmdarstarf- semi gegn þeim atvinuvegi, sem fólkið við sjóinn lifir af? Enn má bjarga málinu, ef þing og þjóð vill hætta þeirri fjárhagslegu sjálfsmorðstilraun, sem iðkuð hefur verið um nokkur undangengin missiri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ófeigur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.