Ófeigur - 15.07.1947, Qupperneq 65

Ófeigur - 15.07.1947, Qupperneq 65
ÓFEIGUR 65 að næturþeli en hverfur frá, af því að vitni ber að garði, er búinn að brjóta boðorðið, þó að hræðsla hindri framkvæmd. Hermann hikar við síðari söluna, eftir að hann er fyrir sitt leyti, búinn að ákveða sinn þátt í þessu ótrúlega loddaraspili. Útgáfa Tímans hafði verið hugsjónamál, þangað til fjárplógsmenn gerðu hreinan stað að ræningjabæli. Þúsundir heiðarlegra manna höfðu gefið blaðinu vinnu og fé. Tveir fátækir bræður í Reykjavík höfðu ánafnað blaðinu verðhækkun á húseign, sem nam tugum þúsunda. Einyrki í Mýrarsýslu fór árum saman ókeypis ferð um allan sinn hrepp til að innheimta andvirði Tímans. Maður hlaðinn stórfelldum önnum, eins og Sigurður Kristins- son, lagði árum saman á sig mikið erfiði til að greiða götu blaðsins. Þeir mörgu menn, sem fóru þannig að, eyddu fé og tíma fyrir blaðið eingöngu til að vinna þjóðinni gagn. Hugsjónamennirnir sem stofnuðu Tím- ann og gerðu hann að áhrifamesta blaði, á íslandi, hefðu verið jafnfúsir til að tæma eiturbikar, eins og að stinga í vasa sína tugþúsundum af f járbralls-blóðpeningum í sambandi við útgáfu blaðsins. Ekki þurfti lengi að bíða áhrifanna af tilkomu fjárplógsmanna að stjórn blaðs- ins. Það er hægt að selja sand, möl og ýmsa aðra dauða hluti. En það var ekki hægt að selja náðarmeðulin og það hefur aldrei tekist að verzla með hugsjónir. Menn- irnir sem fluttu hlutabréfabraskið í miðstöðvar Fram- sóknarflokksins, veittu þangað gaslofti. Síðan hefur hinn bleiki litur ólæknandi uppdráttarsýki einkennt öll fyrirtæki gistivinanna. Ef til vill hefir Hermann Jónas- son ekki vitað, að gróði hans af hlutabréfum þeirra Sigurðar, og sú sannfæring hans, að hann ætti að halda áfram stórgróðaverzlun við hugsjónafyrirtæki þess flokks, sem hafði veitt honum lítt verðskuldaðar vegtyll- ur, varð banamein samvinnuflokksins. Nú fer enginn maður, ár eftir ár, ókeypis ferðir um sína sveit fyrir svo kallaðan samherja, sem vill gera samstarfið að fé- þúfu. Engum manni mun nú koma til hugar að láta tugi þúsunda sem gjafaframlag í útgáfu blaðs, sem er gegn- sýrt af óskum leiðtoga um að geta grætt 200 kr. á hverju hundraði í sameignarsjóðum fyrirtækisins. * * * Það var siður meiri háttar manna í fornöld að hafa skáld með sér í orustum til að láta þau víðfrægja unn-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Ófeigur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.