Ófeigur - 15.07.1947, Page 70

Ófeigur - 15.07.1947, Page 70
70 ÓFEIGUR líf ráðherrans var í veði nú nýverið, í sambandi við úr- slit tiltekins þingmáls, gengið fram fyrir skjöldu og veitt ráðherranum þann ýtrasta pólitíska stuðning, sem hann mátti veita. Mun þess vegna ekki til að dreifa persónulegum kuldatilfinningum frá hálfu menntamála- ráðherra, heldur hinu, að hann hefur búið til lög, sem ekki er hægt að framkvæma. Má telja það táknrænt fyrir gildi hinnar nýju skólaskipunar, að menntamála- stjórnin varð hennar vegna að bera yfirmann elzta og kunnasta skóla í landinu út úr sínu starfshúsi og vísa honum á að telja sig til heimilis í annarri sýslu. Tillaga þessi er borin fram í því skyni, að Alþingi kref jist þess, að tafarlaust verði ráðið fram úr þessu máli á sómasam- legan hátt. Aths. Brynjólfur ráðherra tók rektorsíbúðina af Pálma Hannessjmi og flæmdi hann austur í Ölfus. Ók rektor nálega 100 km. daglega til og frá skóla framan af vetri. „Vorúða- fólkið“ og „gistivinirnir" sýndu rektor vítavert skeytingarleysi. Ég flutti þá þessa tillögu. Þingið glímdi í viku við málið. Þá tókst Pétri Magnússyni að útvega sæmilega íbúð, en frammistaða kennslumálaráðherra og forltólfa Framsóknar sýndi mátt þeirra, þegar reynir á um fyrirhyggju og manndóm. 2. Lóðakaup vegna Menntaskólans. Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að undirbúa löggjöf um eignarnám á lóðum og húsum á landspildu þeirri, sem er austanvert við Menntaskólann í Reykja- vík, milli Amtmannsstígs, Bókhlöðustígs og Þingholts- strætis. Skal land þetta og húseignir síðan lagt til af- nota fyrir nemendur og kennara menntaskólans. Greinargerð: Þegar löggjöf sú um skólamál, sem síðasta Alþingi samþykkti, er komin til framkvæmda, verður Menntaskólinn í Reykjavík a. m. k. að taka á móti' 1000 nemendum. Er því sýnilegt, að þar muni þurfa að auka stórmikið við húsakynni. I tilefni af því hefur fyrrverandi kenslumálaráðherra lagt til, að keypt yrði vegna skólans allmikið land milli Laugarness og Kleppsspítala, og mun hafa verið áformað að reisa þar hús fyrir ca. 15 milljónir króna. Mundi það hafa verið álitleg byrjun, einkum með því að nota líka gamla skóla- húsið fyrst um sinn. En þegar til kom, verður Reykja-

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.