Ófeigur - 15.08.1951, Síða 6

Ófeigur - 15.08.1951, Síða 6
6 ÓFEIGUR kýr í f jósi. Svo mikið er enn til að ónotuðu landi, að á þessari einu hálflendu mætti bæta við öðrum 40 kúm á nýræktaða móa og þrefalt meira á mýrlendið sem tilheyrir hálflendunni á þessari jörð. ÞaraðaukiáHvann- berg eftir að nota jarðhitann, nema að því leyti, sem orkan kemur að góðu gagni til heimilisþarfa. Aðra merkilega ræktun stunda Hvannbergshjónin í Útey. Hafa þau komið upp trjágarði við bæ sinn. Húsið er einlyft og skiptast á kringum það grasblettir og skjól- belti, mest birki og reynir. Er sú heimilisprýði mjög til fyrirmyndar. Beita þau hjónin þar þeirri einu tækni, sem gagn er að við skógrækt kringum bæi: Að hafa grasvelli næst húsunum, en skjóllínurnar þéttar, svo að eitt tréð hlífi öðru, meðan verið er að komast yfir háskaaldur trjátegunda í köldu landi. Síðar má grysja, ef henta þykir, en á berangri má aldrei gleyma, að skjól- ið er trjáplöntunum fyrir öllu> # Pétur Guðmundsson og frú hans, Ragna Sigurðar- dóttir, búnaðarmálastjóra, hafa nú alflutt úr Reykja- vík að Þórustöðum í Ölfusi. Er af þeirri jörð nokkur saga. Búnaðarbankinn reisti þar fyrir mörgum árum snotran fyrirmyndarbæ og samsvarandi peningshús. Það gerðist á hinum magra tíma fyrir síðara stríðið. Þá voru amerísku skurðgröfurnar og ýturnar ekki komnar til landsins, og menn höfðu ekki afl og fé til að þurrka og rækta mýrlendið. Leit út fyrir, að jörðin væri orðin yfirbyggð og var húsgerðin þó varlega fram- kvæmd. Lenti jörðin um stund í eignaskiptum og var þar lítill búskapur. Pétur var sveitamaður að uppruna og farinn að hugsa gott til víðáttumikilli ræktar- landa. Þá keypti hann Þórustaði og ákvað að gera þar miklar umbætur. Lét hann fyrst skurðgröfur þurrka feikna mikið af hinum frjóu, grjótlausu mýrarlöndum sem halla frá Ingólfsfjalli niður að Ölfusá. Síðan komu ýturnar, sáning, uppskera og myndarlegar húsa- bætur, þar á meðal baðstofa í þjóðlegum stíl. Ef litið er á aðstæður þessara þriggja Reykvíkinga, Skúla, Hvannbergs og Péturs, þá glímir einn með góðum ár- angri við sandana, annar við móa, og hinn þriðji við úrvals mýrar, og verður ekki annað sagt, en að öllum virðist þeim hafa farnazt prýðiega. ísland er breyti-

x

Ófeigur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.