Ófeigur - 15.08.1951, Side 38
38
ÖFEIGUR
var létt um að skrifa í blöð og tímarit. Ekki bar á að
Jónas Baldursson hefði ljóðgáfu, en um ýmsa aðra
eiginleika var hann raunverulega aldamótabarn. Hann
var gæddur því lífsfjöri og bjartsýni um ókomna daga,
sem einkenndi þá kynslóð, sem var sannfærð um að
hún mundi endurfæða landið og skila því stjórnfrjálsu
í hendur eftirkomendanna. Alvöruþungi og gróðabrell-
ur tveggja heimsstyrjalda hafa sett sérstakan blæ á
marga þá menn, sem fæðzt hafa upp síðan ófriður
varð hið ríkjandi ástand í heiminum. Óró og erfið-
leikar yfirstandandi tíma snertu ekki Jónas Baldurs-
son á sama hátt og marga samtíðarmenn hans. Hann
hafði með undarlegum hætti hlaupið yfir heilan kapí-
tula í sögu landsins og leit á tilveruna sömu augum
eins og skáldið, sem mótaði í snjöllu formi hugsjón
aldamótakynslóðarinnar:
„íslenzk þjóðar endurfæðing,
ísland frjálst, og það sem fyrst.“
Vegna heilsubilunar föðursins varð Jónas Baldurs-
son að taka við búi hans fyrr en hann hafði óskað.
Honum þótti sér nauðsyn að gista næstu lönd áður
en hann settist um kyrrt að föðurleyfð sinni. Hann
tók það ráð, að leigja bú sitt og jörð í tvö ár. Á
þeim tíma ætlaði hann að kanna ókunna stigu, heim-
sækja Norðurlöndin þrjú og England. Hann bjó sig
vel undir þessa för og hafði stuðning af reynslu ým-
issa góðvina, sem dvalið höfðu fyrr á þessum slóðum.
Hann fór fyrst til Noregs, síðan til Svíþjóðar og það-
an til Danmerkur. Oft heimsótti hann skóla, styttri
eða lengri tíma, tilraunastöðvar og fyrirmyndarbýh.
I borgunum kynnti hann sér með sama hætti líf fólks-
ins og sameiginleg átök. Jónas kom heim um mitt
sumarið milli námsvetranna og starfaði á síldarbát
frá Siglufirði bæði til að freista að afla sér ferðafjár
og kynnast atvinnunni og kjörum síldveiðimanna. Afla-
leysi var þetta sumar, svo að ekki stækkaði ferðasjóð-
urinn til muna, en Jónas reyndi sjálfur iðjuleysi og
vonsvik þeirra mörgu, hraustu ungu manna, sem tóku
á bátnum með honum þátt í þessu þjóðlega en slysa-
gjarna happdrætti íslendinga. Um haustið fór hann
til Englands og dvaldi þar fyrst um stund á hinum