Ófeigur - 15.08.1951, Qupperneq 13

Ófeigur - 15.08.1951, Qupperneq 13
ÖFEIGUR 13 að sjá Aðalbjörgu koma árlega að fótstalli hans. í stað þess vildi hann vera í félagi dauðlegra manna og fá að lifa sína daga án þeirra dýrkunar, sem honum var boð- in, en þótti ófært að þiggja. * Ein er sú hætta sem persónur í aðstöðu Kristnamurta mega aldrei lenda í. Það er að bera fram yfirnáttúrlegt spádómsorð, sem hægt er að hrekja með hversdags- legum og mannlegum rökum. Yfirburðir hinnar frægu véfréttar Delfi lágú í hinum hnitmiðuðu, tvíræðu svör- um. Benjamín gaf út, ásamt með lærðasta hagfræð- ingi Mbl.manna. hátíðlegan úrskurð um mannlegt mál. En þessi spádómsorð hafa verið hrakin daglega við hvert eldhúsúorð í landinu, síðan krónan var felld und- ir eftirliti og fyrirsögn Benjamíns og Ólafs hagfræðings. Skýring þeirra var sú að hin gífurlega gengisfelling mundi ekki þrengja lífskjör almennings í landinu því að óbeinn hagnaður mundi vega móti þeim lítilf jörlegu þrengingum, sem leiða mundu af krónufallinu. Nú styn- « ur þjóðin öll undir afleiðingum gengisfellingarinnar. Mannfélagsskipið er að liðast í sundur undan afleiðing- um þessara stórfeldu aðgerða. Þetta vissi hver ólærð- um maður. Gengisfelling er ekkert annað en lækkun lífskjara. Enska gengisfailið, sem Stafford Cripps stóð fyrir var viðurkennt átak til að herða á sultaról ensku þjóðarinnar, meðan verið var að rétta landið við með auknum fórnum þegnanna. Ef Benjamín og stallbróðir hans hefðu ætlað að halda véfréttargildi sínu, urðu þeir að segja þjóðinni að krónu- fallið væri skerðing á lífskjÖrum hennar' og að sú skerð- ing mundi halda áfram lengra og lengra niður að því sorglega takmarki, þegar krónan yrði verðlaus og allar eignir þurrkaðar út nema áþreifanlegir nytjahlutir og náttúrugæði. Vel hefði ennfremur farið á, að Benjamín hefði játað fyrir hönd lýðræðisleiðtoganna, að þeir hafi eins og hann, stórlega þrotið af sér við borgara lands- ins. Þeir hafi eins og hann árum saman trúað á gildi bolsivismans og falið fimmtuherdeildinni úrslitavöld í þjóðfélaginu. Kjaraskerðing gengisfallsins og allar henn- ar afleiðingar séu eingöngu að kenna fáfræði og van-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Ófeigur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.