Ófeigur - 15.08.1951, Blaðsíða 43
ÖFEIGUR
43
áróðursmáli, heldur með þátttöku í sjálfu landnáms-
starfinu. Honum fannst, að Islendingar væru í land-
eigna og landyfirráðamálum líkt settir og hinn vitri
ættarhöfðingi Gyðinga, sem sagði þegar hjarðmenn
frændanna deildu um beitilandið: ,,Ef þú fer til hægri,
þá fer ég til vinstri.“ Ef til vill hefur víðsýni ættföð-
urs Gyðinga í þessu efni átt nokkurn þátt í að þessi
gáfaða þjóð lifir enn, þrátt fyrir mestu þrautir. Hún
lifir áfram og tekur saman tjöldin og hreyfanlega hluti
til að flytja í heimkynni Abrahams hinn tvístraða ætt-
stofn úr öllum álfum heims. Hér bíður íslenzkrar æsku
líka mjög stórt viðfangsefni. Hvar sem hraustur dreng-
ur fellur í valinn frá byrjuðu dagsverki, verður dæmi
hans eggjun fyrir þá, sem eftir lifa að láta merki réttr-
ar stefnu ekki falla, heldur vera borið fram til sigurs.
Hversvegna gefa Bandaríkin?
Framhald af bls. 34
mundi bolsivikar æða yfir löndin eins og skógar-
eldur í ofviðri, og að lyktum vinna á frjálsu þjóðun-
um líkt og skrælingjar á hvítum mönnum í Grænlandi
fyrr á öldum.
Enn hafa Bandaríkin eina ríka ástæðu til að hjálpa
hinum þurfandi þjóðum. Framleiðslumáttur landsins er
svo mikill, með ríkum náttúrugæðum, véltækni og
atorku, að góðir markaðir eru óhjákvæmilegir, ef ekki
á að falla yfir landið og hinn vestræna heim kreppa
eins og sú, sem hófst í Vesturheimi 1929 og var svo
máttug, að lönd öll skulfu og Bandaríkin öllu mest.
Hagspekingar bolsivika hafa treyst á að þetta fyrir-
bæri mundi endurtakast og leggja viðnámsþrótt hinna
frjálsu þjóða í rústir. Leiðtogum Bandaríkjanna er
ljós þessi hætta. Rússar verjast þessari hættu með
skipulagi framleiðslu sinnar, alveg sérstaklega með
þrælahaldi, nauðungarflutningi verkamanna milli lands-
hluta og héraða og margháttuðum kúgunarráðstöfun-
um. Slíkt fyrirkomulag er með öllu fordæmanlegt í aug-
um þeirra þjóða, sem þekkja andlegt og stjórnmálalegt
frelsi. Hinsvegar er hætta af kreppum yfirvofandi og
verður ekki til lengdar skotið á frest með atvinnu við
vígbúnað og gjöfum til annarra þjóða.