Ófeigur - 15.08.1951, Side 64

Ófeigur - 15.08.1951, Side 64
64 ÖFEIGUR ræfli. Innihaldsleysið í framburði Ólafs sannar betur en flest annað, hve lítið dómendur í Hæstarétti hafa skilið eðli málsins er þeir knýja fram svo þýðingar- iausa yfirheyrzlu um málsatriði sem voru meira en fullskýrð. „1930, Nóv. 12. Kéttarhald í lögreglurétti Keykjavíkur. Pyrir var tekið að halda áfram réttarrann- sókn í framangreindu máli. í réttinum er mættur Ólafur Jónsson, áður bifreiðar- stjóri, nú loftskeytamaður á b/b. Gylfi, og kom frá Englandi í dag kl. 2 e. h. Hann er 24 ára, til heimilis að Fálkagötu 13. Hann er mjög alvarlega áminntur um sannsögli. Aðspurður um það, hvað gjörðist eftir að ákærði og yfirh. komu í skúrinn, segist hann alls ekki muna greini- lega um málsatvikin eftir svo Iangan tíma. Hann kveðst þó greinilega muna, að Pétur hafi ekið bifreiðinni inn eftir og kveðst hann hafa setið við hlið hans. Hvor þeirra fór út úr bifreiðinni til þess að opna skúrinn eða hvort þeir fóru báðir, það man hann ekki. Þessi bifreið var einatt geymd þarna og hafði Pétur með hana að gera — ók henni þegar hann var'ekki á verk- stæðinu. Hann minnir fremur að Pétur færi út úr til þess að opna skúrinn, því hann hafði lyklavöld að skúrnum vegna þess að hann geymdi bifreið sína þar. Síðan ók Pétur bifreiðinni rétt inn úr dyrunum, en þó ekki nægilega langt að Pétri þótti, enda minnir hann að eitthvert dót væri fyrir í skúrnum og minnir hann að þeir færu báðir í að taka það frá, því hann minnir nú að hann færi út úr bifreiðinni fyrir utan dyrnar og ekki upp í hana eftir það. — Aðspurður, kveðst hann alls ekki muna, hvaða dót þetta var, sem þeir tóku frá. Þegar hann er spurður um það, hvort þetta hafi verið hjólbörur, segist hann alls ekki muna það. Hann kveðst svo hafa ætla að láta Pétur um það að koma bifreiðinni fyrir að svo miklu leyti, sem eftir var. Framh. Afgreiðsla Landvarnar: Laugaveg 7, Reykjavík. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jónas Jónsson frá Hriflu. Prentað í Steindórsprenti h.f., Tjarnargötu 4, Reykjavik.

x

Ófeigur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.