Ófeigur - 15.08.1951, Síða 16
16
ÖFEIGUR
átta ár að uppgötva, að fimmtaherdeild Rússa hér á
landi sé ekki beinlínis vel fallin til að ráðstafa þjóð-
málum í þingræðislandi.
*
Hagfræðingar landsins hafa um nokkura stund leit-
azt við að koma almenningi á þá trú, að orð þeirra
væru óskeikul og óbrigðul sannindi. Þeir hafa í því
efni átt ýmsa landskunna fyrirrennara í vísindum á
öðrum sviðum: Árna Friðriksson í síldarspádómunum.
Dungal sem fann upphaf karakúlpestarinnar í Deildar-
tungusniglunum. Síðar skrifaði Dungal sem vísindamað-
ur, að allt sem fjórir stéttarbræður hans í guðfræði-
deild háskólans segja og hafa sagt um kristin málefni,
sé staðlausir stafir og rakalaus ósannindi. Löve, með
sínar margháttuðu kynbótatilraunir á gróðri landsins.
Alexander, með sínar frægu kenningar um breytingar
málróms manna eftir því, hvort þeir horfa á þríhyrn-
inga eða hringlagaðar flatarmyndir. Hér á landi hefur
á síðustu árum risið upp fjárfrek og þóttafull stétt
sannleiksleitenda, sem hefur litið á hæfileika sína og
afrek sömu augum eins og vefararnir í ævintýri And-
ersens á klæðaiðnað sinn. Ungir hagfræðingar hafa
hér aðeins fetað í -spor Dungals og Löves, enda voru
fordæmin lokkandi. Fjórir hagfræðingar lögðu á ráð
um myndun og vinnubrögð viðskiptaráðs og fjárhags-
ráðs. Aðrir hagspekingar gáfu út mikla skýrslu á for-
lagi nýbyggingarráðs, um, að erlend skip mundu á fyrstu
fimm friðarárunum tæma fiskimiðin hér við land. Þess
vegna væri um að gera, að koma upp sem stærstum
togara og vélbátaflota fyrir stríðsgróðann, til þess að
geta með útlendingunum tekið þátt í að eyða síðustu
fiskunum á íslenzkum miðum. Spásögn Benjamíns og
Ólafs Björnssonar um gengisfallið og lífskjörin er áð-
ur lýst. Bátagjaldeyririnn á sína fræðilegu undirstöðu
í kenningum þeirra hagfræðinga, sem leiðbeina stjórn
Francós á Spáni, og er skipulagið þaðan komið. Hins-
vegar er kenningin um að bezt sé að hafa seðlapress-
una í kjallara fjárhagsráðuneytisins ekki ný, heldur
hefur hún verið leiðarstjarna allra stjórna, sem höfðu
ekki nægilegt fé milli handa nema með því að fylla
í skörðin með eigin framleiðslu, og prentsvertuhjálp.
*
Þó að móttökur Benjamíns væru óvenjulega hátíð-