Ófeigur - 15.08.1951, Qupperneq 51
ÖFEIGUF.
51
þarf mannfélagsskipulag til að gera slíkar sýningar
hugþekkar almenningi og sjálfstæðan atvinnuveg. Þetta
má gera, og er nokkur byrjun hafin í þessu efni af
þeim aðilum, sem verða að leysa málið, en það eru
kaupfélögin og Sambandið. Hver sveit og þorp verður
að eiga sýningarvél fyrir mjófilmur, til afnota í sínu
samkomuhúsi. Myndadeild Sambandsins kaupir, leigir
og býr til filmur. Síðan ganga filmurnar eftir fyrir-
framgerðu skipulagi, byggð úr byggð og þorp úr þorpi.
Með þeim hætti verða þessar myndasýningar að vísu
ekki gróðafyrirtæki, en þær ættu að geta verið sjálf-
bjargarfyrirtæki almennings í dreifbýli. Með þessu
eina móti getur dreifbýlið fengið góðar kvikmyndir
með sama tilkostnaði eins og þeir, sem búa í borgum
og bæjum. Með þessu skipulagi getur hver byggð ráð-
ið, hve oft fólkið vill sjá kvikmyndir. Sumir mundu
vilja hafa sýningar vikulega, aðrir einu sinni í hálfum
mánuði og enn aðrir sjaldnar. Með skipulagi samvinnu-
félaganna á að vera hægt að verða við sanngjörnum
óskum allra, sem nú eru útundan um slíkar sýning-
ar, því að þær eru ekki gróðavegur. Sambandið hef-
ur haft forgöngu í þessu máli og útvegað allmörgum
kaupfélögum hentugar sýningarvélar. Erindreki sam-
bandsins, Baldvin Kristjánsson, hefur á undangengnum
árum ferðazt mikið um allt land, haldið fjöldmarga
fyrirlestra og víða haft myndasýningar. Sú starfsemi
mun verða varanleg. Samvinnufélögin hljóta jafnan
að fræða sína félagsmenn um starfsemi innlendra og
erlendra samvinnufélaga. Hinar almennu, skipulögðu
myndasýningar, sem hér er vikið að, yrðu sérgrein
viðskipta samvinnumanna, hliðstætt búðum félaganna,
sem standa opnar öllum almennum viðskiptum. Þetta
skipulag væri hliðstætt í dreifbýli og þorpum og þeg-
ar Sambandið kemur upp verksmiðju, sem að líkind-
um þvær ull íslenzkra bænda, hvort sem þeir eru í
sambandsfélögum eða ekki.
Sveitabærinn á Grenjaðarstað.
Nálega allir gömlu sveitabæirnir eru eyddir, og má
telja það óhapp sviplíkt því, en síður afsakanlegt, þeg-
ar nálega öll hin fomu skinnhandrit hurfu úr landi.